Varamennirnir snéru taflinu við fyrir United

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Varamennirnir Marcus Rashford og Anthony Martial sáu um markaskorun Manchester United í kvöld.
Varamennirnir Marcus Rashford og Anthony Martial sáu um markaskorun Manchester United í kvöld. Michael Regan/Getty Images

Manchester United vann mikilvægan 2-3 sigur er liðið heimsótti kýpverska liðið Omonia í riðlakeppni Evrópdeildar UEFA í kvöld.

Þrátt fyrir nokkra yfirburði United í upphafi leiks voru það heimamenn í Omonia sem urðu fyrri til að brjóta ísinn. Tyrell Malacia tapaði boltanum þá á hættulegum stað og Karim Ansarifard batt að lokum endahnútinn á vel útfærða skyndisókn heimamanna á 34. mínútu og staðan því 1-0 þegear liðin gengu til búningsherbergja.

Varamaðurinn Marcus Rashford jafnaði þó metin fyrir gestina snemma á 53. mínútu með fallegu marki og tíu mínútum síðar skoraði annar varamaður, Anthony Msrtial, annað mark liðsins.

Það var svo Rashford sem kom gestunum í tveggja marka forskot með marki á 84. mínútu áður en heimamenn jöfnuðu metin mínútu síðar og þar við sat. Niðurstaðan því 2-3 sigur United sem situr nú í öðru sæti E-riðils með sex stig eftir þrjá leiki, en Omonia rekur lestina án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira