Lífið

„Eins og að vera í íslensku felulitunum“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Benjamin Hardman myndaði íslenska jökla fyrir 66°Norður. 
Benjamin Hardman myndaði íslenska jökla fyrir 66°Norður.  Ari Magg

66°Norður gefur út Dyngju úlpuna í sérstakri útgáfu með jöklaprenti. Úlpan ber mynd sem ljósmyndarinn Benjamin Hardman tók af íslenskum jöklum. Hann hefur síðustu misseri vakið mikla athygli fyrir myndir sínar af íslenskri náttúru.

„Það sem greip mig um leið var þessi ótrúlegi skærblái litur sem íslensku jöklarnir skarta. Þeir innihalda svo mikla fegurð og sögu sem teygir sig mörg þúsund ár aftur í tímann. Jöklarnir bjóða upp á hin ýmsu form sem er gerir þá ótrúlega skemmtilega að mynda,“ segir Benjamin um verkefnið.

Rapparinn Skepta í íslenskri jöklaflík með mynd frá Benjamin Hardman. Skepta er með yfir 3,3 milljón fylgjendur á Instagram. 

„Sem hönnuður er mjög mikilvægt fyrir mig að velja rétt útlit fyrir sérstakar útgáfur eins og þessa. Það getur verið flókið að vinna með prent sem er ætlað að þekja alla flíkina. Það þarf að útfæra með tilliti til hvaða tegund af flík um ræðir og hvers konar efni er verið að nota. Ef ég loka augunum og hugsa um íslenska náttúru, þá er þetta prent útkoman. Þetta er í rauninni eins og að klæðast íslenskum felulitum,“ segir Bergur Guðnason, hönnuðurinn á bak við Dyngju.

Ari Magg

Úlpan er úr endurunnum dúni og ytra birgði hennar er einnig úr endurunnu efni. Úlpan kemur í takmörkuðu upplagi í þessari sérstöku útgáfu og verður hún í forsölu í dag.

Ari Magg

Myndirnar fyrir herferðina á þessum nýju flíkum tók ljósmyndarinn Ari Magg. Var meðal annars myndað í íshelli uppi á jökli.

Ari Magg
Ari Magg

Tengdar fréttir

Litagleði á setningu Alþingis

153. setning Alþingis fór fram fyrr í dag. Eins og fjallað var um hér á Vísi flutti Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ávarp fyrir alþingismenn.

„Rokkstjörnustælar og bling“

Litagleði, gelluvíbrur og rokkstjörnu stælar einkenna Júlíu Grönvaldt, sem starfar sem listrænn stjórnandi og stílisti við fjölbreytt verkefni tengd tísku, menningu og listum. Hún lærði tískumiðlun í Flórens á Ítalíu en flutti heim eftir námið til að vinna sem sjálfstætt starfandi og elskar að geta notað ástríðu sína á tísku í starfi. Júlía er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×