Fótbolti

Strax búinn að toppa mínútur Helga Sig en á tölu­vert í að ná Árna Gauti og Eið Smára

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hákon Arnar fékk smjörþefinn af Meistaradeild Evrópu gegn Borussia Dortmund í vikunni.
Hákon Arnar fékk smjörþefinn af Meistaradeild Evrópu gegn Borussia Dortmund í vikunni. Ulrik Pedersen/Getty Images

Hákon Arnar Haraldsson spilaði síðasta hálftímann er FC Kaupmannahöfn tapaði 3-0 gegn Borussia Dortmund í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn var. Þar með varð Hákon Arnar 15. Íslendingurinn til að leika í deild þeirra bestu. 

Hann hefur nú þegar toppað mínútufjölda eins Íslendings í keppninni en nokkuð er í þann sem hefur spilað flesta leiki og flestar mínútur. Hákon Arnar ræddi tilfinninguna að koma inn af bekknum gegn Dortmund í viðtali við Stöð 2 og Vísi. Viðurkenndi táningurinn að þetta væri eitthvað sem honum hefði dreymt um síðan hann var bara lítill pjakkur að sparka í bolta á Akranesi.

Miðað við að þetta var aðeins fyrsti leikur FCK í riðlakeppninni má reikna með að leikirnir verði fleiri. Þá má reikna með að Ísak Bergmann Jóhannesson, æskuvinur og liðsfélagi Hákon Arnars, verði 16. Íslendingurinn á listanum innan tíðar.

Hvort úrslitin verði betri á þriðjudaginn var mun svo koma í ljós en ásamt Dortmund eru Manchester City og Sevilla í riðli með FCK.

Hér að neðan má sjá lista yfir þá Íslendinga sem hafa spilað í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en hún var sett á laggirnar á tíunda áratug síðustu aldar.

15. Helgi Sigurðsson

Helgi spilaði einn leik (18 mínútur) með Panathinaikos (Grikkland) árið 2001.EPA PHOTO/OLIVER BERG

14. Hákon Arnar Haraldsson 

Hefur spilað einn leik (30 mínútur) með FC Kaupmannahöfn (Danmörk) árið 2022. Er fjórði Íslendingurinn til að spila fyrir FCK í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.Lars Baron/Getty Images

13. Alfreð Finnbogason

Alfreð spilaði þrjá leiki (58 mínútur) með Olympiacos (Grikkland) tímabilið 2015-16. Skoraði hann eitt mark, í 3-2 sigri á Arsenal á Emirates-vellinum í Lundúnum.EPA/SEAN DEMPSEY

12. Sölvi Geir Ottesen 

Sölvi Geir spilaði þrjá leiki (103) mínútur fyrir FC Kaupmannahöfn (Danmörk) tímabilið 2010-11.EPA/SERGEY DOLZHENKO

11. Mikael Neville Anderson 

Mikael spilaði fimm leiki (164 mínútur) með Midtjylland (Danmörk) tímabilið 2020-21. Gaf hann eina stoðsendingu í leikjunum fimm.Lars Ronbog/Getty Images

10. Hörður Björgvin Magnússon

Hörður Björgvin spilaði þrjá leiki (237 mínútur) fyrir CSKA Moskvu (Rússland) tímabilið 2018-19.

9. Arnór Sigurðsson 

Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson voru liðsfélagar hjá CSKA Moskvu. Arnór tók þátt í öllum sex leikjum (355 mínútur) CSKA í riðlakeppni Meistaradeildarinnar tímabilið 2018-19. Skoraði hann tvö mörk, gegn Roma og Real Madríd, ásamt því að gefa eina stoðsendingu.VÍSIR/GETTY

8. Rúrik Gíslason 

Rúrik spilaði sex leiki (391 mínútu) fyrir FC Kaupmannahöfn tímabilið 2013-14.Lars Ronbog/Getty Images

7. Birkir Bjarnason 

Hinn fjölhæfi Birkir spilaði fimm leiki (434 mínútur) fyrir Basel (Sviss) tímabilið 2016-17.EPA/IAN LANGSDON

6. Kári Árnason 

Kári spilaði fimm leiki (449 mínútur) fyrir Malmö (Svíþjóð) tímabilið 2015-16.EPA/KRUGFOTO

5. Ragnar Sigurðsson 

Ragnar spilaði alla sex leiki (540 mínútur) FC Kaupmannahöfn tímabilið 2013-14 frá upphafi til enda. Gaf miðvörðurinn tvær stoðsendingar í leikjunum sex. Hér er hann í baráttunni við Cristiano Roanldo er FCK mætti Real Madríd. Karim Benzema fylgist með úr fjarska.EPA/JENS NOERGAARD LARSEN

4. Eyjólfur Sverrisson 

Eyjólfur spilaði alls átta leiki (720 mínútur) með Hertha Berlín tímabilið 1999-2000. Þarna var enn „milliriðill“ í Meistaradeildinni og þaðan var farið beint í 8-liða úrslit ólíkt því sem þekkist í dag þegar aðeins er einn riðill og efstu tvö liðin fara í 16-liða úrslit. EPA PHOTO/LLUIS GENE

3. Kolbeinn Sigþórsson 

Sóknarmaðurinn spilaði alls 11 leiki (834 mínútur) fyrir Ajax (Holland) frá 2011 til 2015.EPA/ALEJANDRO GARCIA

2. Árni Gautur Arason 

Markvörðurinn öflugi spilaði alls 21 leik (1890) mínútur með Rosenborg (Noregur) frá 1998 til 2003. Hélt hann þrívegis hreinu, gegn Galatasaray, Ajax og Celtic. Hann var fyrstur Íslendinga til að spila í Meistaradeildinni eins og við þekkjum hana í dag.

1. Eiður Smári Guðjohnsen

Eiður Smári spilaði alls 45 leiki (2396) mínútur með Chelsea og Barcelona frá 2003 til 2009. Alls skoraði hann sjö mörk á þeim tíma og gaf átta stoðsendingar. Þá er hann eini Íslendingurinn sem hefur lyft þeim eyrnastóra en Eiður Smári vann Meistaradeild Evrópu með Barcelona vorið 2009.EPA/ALBERT OLIVE



Fleiri fréttir

Sjá meira


×