Fótbolti

Einn sá sigursælasti orðinn liðsfélagi Ögmundar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Vinsæll í Madrid.
Vinsæll í Madrid. vísir/Getty

Brasilíski bakvörðurinn Marcelo er genginn til liðs við gríska stórveldið Olympiacos.

Þessi 34 ára gamli leikmaður yfirgaf Real Madrid í sumar eftir fimmtán ára veru á Spáni þar sem hann stimplaði sig inn sem goðsögn hjá spænska stórveldinu og var um tíma besti sóknarbakvörður heims.

Marcelo var hluti af sigursælu liði Real Madrid og var í lykilhlutverki í öllum fimm Evrópumeistaratitlum félagsins auk þess sem hann varð sex sinnum spænskur meistari og lék yfir 500 leiki fyrir félagið.

Olympiacos, sem er ríkjandi meistari í Grikklandi, gerir eins árs samning við Marcelo. Íslenski markvörðurinn Ögmundur Kristinsson er á mála hjá Olympiacos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×