Tímaritið TMZ greinir frá þessu en TMZ birti upptöku af myndbandi Britney og má þar heyra að súperstjarnan lét allt flakka.
Vill segja sína eigin sögu
Britney byrjar á að tala um að það sé mikið að gerast hjá sér um þessar mundir. Fjölmiðla kanónur á borð við Oprah Winfrey hafi boðið henni einkaviðtöl um sögu sína en Britney hefur engan áhuga á því og finnst hallærislegt að selja sögu sína á þann hátt. Því hafi hún ákveðið að gera það sjálf og fór beint í að tjá sig um erfitt tímabil í hennar lífi, í kringum árið 2007.
I have to honor myself and realize it s not about pleasing others or driving yourself crazy on what other think ... to honor myself ... and value myself is the only way to something we all seek ... Self love value of self , and passing that on to every person I encounter !!!
— Britney Spears (@britneyspears) August 29, 2022
Stjórnsamur faðir
Þegar Britney var svipt sjálfræði segist hún ekki hafa skilið af hverju. Allt í einu hafi faðir hennar, Jaime, stjórnað öllu og var mjög stjórnsamur við hana. Að hennar sögn sagði hann eitt sinn við hana: „Ég er Britney Spears og ég fæ að ráða öllu.“
Hún segir að einhver kona hafi komið með hugmyndina að þessu öllu við Jaime og að mamma hennar hafi hjálpað honum við að koma þessu í gegn. Britney kallar þetta hreina misbeitingu og minnist þess að hafa verið haldið niður í sjúkrabörum þegar þyrlur og ljósmyndarar sveimuðu um daginn sem hún var lögð inn á geðdeild.
Lék sér með fjölmiðlana
Britney segist hafa skemmt sér vel við að leika sér að blaðamönnum og ljósmyndurum.
„Það er enn í dag eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert tengt frægðinni.“
Hún segist ekki skilja hvað hafi verið svona skaðlegt við það.
Leið eins og vélmenni
Í myndbandinu lýsir Britney því hvernig það hafi verið að vinna undir stjórn föður síns. Henni leið eins og vélmenni sem mátti ekki tjá sig. Þegar Vegas tónleikaröðin hennar hætti árið 2017 var strax farið að skipuleggja næstu viðburði. Á einni æfingu hafi hún staðið upp fyrir sjálfri sér og tjáð sig um ákveðið dansspor. Í kjölfarið á því segist Britney hafa verið send beint á stofnun undir þeim formerkjum að hún væri að leita sér hjálpar og hefði áhyggjur af heilsu föður síns. Þegar hún var á stofnuninni var hún sett á mikið af lyfjum og segir hún föður sinn hafa hótað sér með lagalegri baráttu sem hann hélt að hún ætti ekki roð í að sigra.
Life goes on !!! On rare occasions there can be something sought after, something that makes us wanna go further pic.twitter.com/HIHgCr4NoO
— Britney Spears (@britneyspears) August 29, 2022
Dimmur kafli
Britney segir þetta tímabil hafa verið virkilega dimmt og erfitt og var sárt að sjá móður sína líta undan og veita enga hjálp. Lífi Britney var stýrt á alla vegu og hún fékk ekki að stjórna því hvað hún borðaði, hvar hún mátti vera eða hvernig dagskráin hennar var. Á þessum tíma fór svo #FreeBritney hreyfingin á fullt og náði að efla sjálfsöryggi hennar. Þá treysti hún sér loksins til að taka stjórn á lífi sínu og gera tilraun til að komast út úr forræði föður síns og segist Britney þakklát fyrir mótmælendurna sem studdu við hana.
Okie dokie my first song in 6 years !!!! It s pretty damn cool that I m singing with one of
— Britney Spears (@britneyspears) August 25, 2022
the most classic men of our time @eltonofficial !!!! I m kinda overwhelmed it s a big deal to me !!! I m meditating more and learning my space is valuable and precious !!!
Stendur með sjálfri sér
Britney segir að Jamie og hans teymi hafi haldið að hún kæmi skríðandi til baka en í staðinn fékk hún sér lögfræðing, stóð með sjálfri sér og hefur reynt sitt allra besta við að taka stjórn á eigin lífi. Hún var að gefa út lag í fyrsta skipti í sex ár með engum öðrum en Elton John og á Twitter skrifar hún að það þýði mikið fyrir sig. Hún segist einnig vera að hugleiða meira og að hún sé stöðugt að læra að hennar pláss sé verðmætt.