Fótbolti

Stefán Teitur og félagar misstu af sæti í Evrópudeildinni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Silkeborg náðu ekki að tryggja sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Silkeborg náðu ekki að tryggja sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Vísir/Getty

Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í danska liðinu Silkeborg misstu naumlega af sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn finnska liðinu HJK í dag. HJK vann fyrri leikinn 1-0 og einvígið því samanlagt 2-1.

Danska liðið hefur þó ekki lokið leik í Evrópukeppnum á tímabilinu þar sem tapliðið í einvíginu fer beint í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Stefán Teitur og félagar verða því í pottinum þegar dregið verður í riðla á morgun.

Stefán hóf leik í byrjunarliði Silkeborg, en var tekinn af velli í hálfleik eftir að hafa fengið að líta gula spjaldið á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Þá hafði finnska liðið 0-1 forystu eftir mark á 40. mínútu, en heimamenn í Silkeborg jöfnuðu metin þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×