Íslenski boltinn

Var ranglega úrskurðuð í bann fyrir úrslitaleikinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Lara Kristín Pedersen, leikmaður Vals, var ranglega úrskurðuð í bann en þeirri ákvörðun hefur verið snúið við.
Lara Kristín Pedersen, leikmaður Vals, var ranglega úrskurðuð í bann en þeirri ákvörðun hefur verið snúið við. Vísir/Hulda Margrét

Lára Kristín Pedersen, leikmaður Íslandsmeistara Vals, má spila með liðinu í komandi úrslitaleik í Mjólkubikar kvenna. Hún var ranglega úrskurðuð í bann í vikunni og þeirri ákvörðun hefur verið snúið við.

Lára Kristín fékk gult spjald gegn fyrrum liðsfélögum sínum í Stjörnunni þegar Valur vann 3-1 sigur í undanúrslitum keppninnar föstudaginn 12. ágúst. Það var annað gula spjald hennar í keppninni, en hún fékk einnig áminningu gegn öðrum fyrrum liðsfélögunum sínum í KR, þar sem Valur vann 3-0 sigur í 8-liða úrslitum.

Hún var því úrskurðuð í eins leiks bann, í úrslitaleiknum, á fundi aga- og úrskurðanefndar KSÍ þann 16. ágúst síðastliðinn. Sú ákvörðun átti hins vegar ekki rétt á sér, þar sem gul spjöld í keppninni strikast út eftir 8-liða úrslit til að koma í veg fyrir nákvæmlega þetta - að leikmenn eigi ekki á hættu að fara í leikbann í úrslitum keppninnar fái þeir gult spjald í undanúrslitunum.

KSÍ tilkynnti á heimasíðu sinni að banninu hefði því verið snúið við á aukafundi aga- og úrskurðarnefndar í fyrradag, 18. ágúst.

Valur mætir Breiðabliki í úrslitum bikarkeppninnar á Laugardalsvelli næsta laugardag, 27. ágúst, klukkan 16:00.

Tilkynning KSÍ

Þar sem áminning (gult spjald) Láru Kristínar í leik gegn KR telur ekki að loknum 8 liða úrslitum, hefur í för með sér að Lára hefði með réttu ekki átt að vera úrskurðuð í 1 leiks bann á fundi aga- og úrskurðarnefndar þann 16. ágúst sl. Á aukafundi sínum í dag 18. ágúst, leiðrétti aga- og úrskurðarnefndar því úrskurð sinn frá 16. ágúst og felldi úr gildi leikbann Láru Kristínar Pedersen.

Ákvæði 8.3. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál er svohljóðandi:

Ef augljóst er, að kveðinn hafi verið upp rangur úrskurður varðandi agamál vegna villandi eða rangra upplýsinga í skýrslu dómara og/eða eftirlitsmanns eða rangrar/ófullnægjandi skráningar eða ef rangar upplýsingar hafa borist skrifstofu KSÍ, þá skal aga- og úrskurðarnefndin halda aukafund sbr. gr. 5.2. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál, og leiðrétta úrskurð eða kveða upp nýjan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×