Fótbolti

Anna Björk framlengir samning hinn hjá Inter

Hjörvar Ólafsson skrifar
Anna BJörk Kristjánsdóttir mun leika áfram fyrir Inter Milan. 
Anna BJörk Kristjánsdóttir mun leika áfram fyrir Inter Milan.  Vísir/Getty

Anna Björk Kristjánsdóttir hefur framlengt samning sinn við Inter Milan en þetta kemur fram á Twitter-síðu félagsins í dag.

Nýr samningur Önnu Bjarkar við Inter Milan gildir út næsta keppnistímabil eða til haustsins 2023. 

Þessi 32 ára gamli miðvörður gekk til liðs við Inter Milan frá franska liðinu Le Havre fyrir síðustu leiktíð en hún hefur einnig leikið með Örebro, Limhamn Bunkeflo og PSV Eindhoven erlendis. 

Hér heima lék hún með uppeldisfélagi sínu, KR, Stjörnunni og Selfossi. 

Inter Milan hafnaði í fimmta sæti ítölsku efstu deildarinnar síðastliðið vor. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×