Fótbolti

Stundum áttavilltar í kastalanum en enginn hefur týnst ennþá

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Arnardóttir fyrir utan kastalann þar sem íslenska kvennalandsliðið gistir á meðan Evrópumótinu stendur.
Guðrún Arnardóttir fyrir utan kastalann þar sem íslenska kvennalandsliðið gistir á meðan Evrópumótinu stendur. Vísir/Vilhelm

Það fylgja því kostir og gallar að búa í kastala. Því hafa stelpurnar okkar komist að í sveitahótelinu sínu frá því að þær komu til Englands þar sem fram undan er Evrópumótið í knattspyrnu.

Miðvörðurinn Guðrún Arnardóttir talaði vel um kastalahótel landsliðsins egar hún var spurð um það hvernig væri að búa í kastalanum.

„Þetta er mjög fínt. Við erum með stór og rúmgóð herbergi. Þetta er svolítið stórt þannig að maður á það til að vera áttavilltur og vita ekki alveg hvar maður eru staddur. Maður finnur leiðina á endanum,“ sagði Guðrún létt. Það er eins gott að stelpurnar okkar séu ekki að týnast í 400 ára gömlum kastala.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir brugðu á leik fyrir ljósmyndara Vísis.Vísir/Vilhelm

Þær eru líka meira einar á ferð því að þessu sinni eru þær ekki með herbergisfélaga.

„Núna erum við einar á herbergi og getum því aðeins fengið alone time ef maður vill það. Við erum líka með setustofu fyrir leikmenn þar sem við getum dottið í alls konar gíra, í pílu, í karókí og eitthvað kósí föndur. Þetta er rosagóð stemmning hjá okkur og þetta er skemmtilegur hópur að vera partur af,“ sagði Guðrún.

Reynsluboltar íslenska liðsins hafa hjálpa starfsfólki KSÍ við að búa til sem bestar aðstæður fyrir liðið á meðan mótinu stendur.

„Þær hafa verið mikið að miðla sinni reynslu til alls hópsins, bæði leikmanna og starfsfólks til þess að reyna að gera þetta eins og gott og mögulegt er. Það er gríðarlega mikilvægt að hafa reynslumikla leikmenn í þessu og við erum líka með leikmenn sem eru að spila á stórum sviðum i Evrópu og heiminum,“ sagði Guðrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×