Um­fjöllun: Eng­land-Austur­­ríki 1-0 | Enska liðið stóðst væntingar fyrir framan troð­fullan Old Traf­ford

Hjörvar Ólafsson skrifar
Beth Mead horfir hér á eftir boltanum fara inn í markið. 
Beth Mead horfir hér á eftir boltanum fara inn í markið.  Vísir/Getty

England mætti Austurríki í fyrsta leik Evrópumóts kvenna í fótbolta í kvöld. Mikil spenna er fyrir mótinu og til marks um það var uppselt á Old Trafford. 

Miklar væntingar eru gerðar til enska liðsins á mótinu og þær stóðust pressuna í fyrsta leik hið minnsta. 

Lokatölur í leiknum urðu 1-0 Englandi í vil en það var Beth Mead, framherji Arsenal, sem skoraði siguramark leiksins eftir tæplega 20 mínútna leik. 

Mead fékk þá sendingur frá Fran Kirby, sem leikur með Chelsea, og vippaði boltanum laglega yfir Manuela Zinsberger, markvörð Austurríkis en markið má sjá hér að neðan:

Það var myndbandsdómgæslan sem staðfesti að markið væri gott og gilt en notast er við þá tækni í fyrsta skipti á Evrópumóti kvenna. 

Meira var ekki skorað í leiknum og England hefur mótið vel. Þetta var 15. leikurinn í röð án taps hjá Englandi en liðið þykir sigurstranglegt á mótinu. Af þessum leikjum hefur liðið haft betur í 13 og gert jafntefli í tveimur.

María Þórisdóttir og samherjar hennar hjá Noregi mæta Norður-Írum í seinni leik í fyrstu umferð A-riðils á morgun. 

Ísland hefur svo leik á sunnudaginn kemur þegar liðið etur kappi við Belga á æfingavelli Manchester City. 


Tengdar fréttir

Upp­selt á Old Traf­ford þar sem Eng­land hefur leik á EM

Það er gríðarleg spenna fyrir Evrópumóti kvenna í fótbolta sem hefst síðar í dag þegar England mætir Austurríki á Old Trafford. Uppselt er á leikinn og er Englendingurinn þegar farinn að velta fyrir sér, er hann að koma heim?

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira