Menning

LungA: Gleði, sjálfsþekking, elskendur, nýir vini og góðar minningar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
LungA verður haldið dagana 12. - 17. júlí á Seyðisfirði.
LungA verður haldið dagana 12. - 17. júlí á Seyðisfirði. Aðsend

LungA hátíðin fagnar nú 22 ára afmæli sínu og hefur fest sig í sessi sem ein framsæknasta lista- og menningarhátíð landsins. Í ár verður hátíðin haldin dagana 12. - 17. júlí en blaðamaður tók púlsinn á Tinnu Sigurðardóttur sýninga- og listviðburðastjóra LungA og fékk að heyra nánar frá hátíðinni.

Á LungA koma jafnan fram fjölmargir listamenn, bæði íslenskir og erlendir og í ár verður engin breyting þar á. Seyðisfjarðarbær iðar jafnan af lífi meðan á hátíðinni stendur þar sem gestir koma hvaðanæva af til að sameinast í nafni sköpunargleðinnar. 

Fagna fjölbreyttri sköpun

LungA mun bjóða upp á fjölbreytta viðburði alla vikuna og er aðgangur ókeypis að mestu leyti. Þátttakendur geta valið á milli ýmissa gjörninga, fyrirlestra, umræðna, kvikmynda, dans, myndlistarsýninga og fleira.

„Listahátíðin LungA snýst alfarið um að fagna fjölbreyttri sköpun, tjáningu, listum og menningu með þeim námskeiðum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum sem hátíðin hefur upp á að bjóða. LungA var fyrst haldin árið 2000 þannig þetta mun vera í 23. sinn sem hátíðin er haldin. Þó var hún haldin með minna sniði árin 2020 og 2021 vegna óviðráðanlegra aðstæðna, sem við vitum öll hvað voru,“ segir Tinna. 

Á þessum tveimur árum hefur hátíðin því fengið ákveðið rými til að þróast og mótast. Í ár mun því verða nokkur breyting á skipulagi tónleikahaldanna þannig að tónleikarnir verða dreifðir á nokkrum sviðum um og í kringum Seyðisfjarðarbæ og verða því ekki haldnir á Norðursíldarplaninu líkt og undanfarið. Með þessari breytingu er leitast við að skapa töfrandi upplifun þar sem tónlistin mun leika við náttúru Seyðisfjarðar á einstakan máta.

Þemað er jafnrétti

Samkvæmt Tinnu er fjölbreytileikinn í fyrirrúmi á hátíðinni.

„LungA hefur getið sér gott orðspor, bæði á Ísland og út fyrir landsteinana fyrir frábært andrúmsloft, námskeið af miklum gæðum og með mikilli virkni þátttakenda. 

Enn fremur færir hátíðin gleði, sjálfsþekkingu, elskendur, nýja vini og góðar minningar fyrir þá sem sækja hátíðina heim.“

Þema hátíðarinnar í ár er jafnrétti. Má því búast við ýmsum viðburðum sem fást við og hverfast um hvers konar jafnréttispælingar. Að venju er einnig boðið upp á listasmiðjur sem hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár.

„Ætli þemað snúist ekki einfaldlega um að leggja áherslu á það að allir, og þá ALLIR, eigi jafnan rétt að því að skapa og kynnast list á þeirra eigin forsendum. 

Þess vegna hafa listasmiðjur, sýningar og aðrir viðburðir yfir vikuna það að markmiði sínu að sýna og fagna fjölbreytileika og spanna breitt svið innan hugtaksins listar.“

Frjór jarðvegur fyrir alla

Það er ekki að undra að Tinna hlakki mikið til hátíðarinnar eftir mikla undirbúningsvinnu.

„Það sem er skemmtilegast við að skipuleggja þessa hátíð er án efa að mæta á staðinn og kynnast öllum listamönnunum sem að koma að sækja hátíðina, hvort sem um er að ræða listasmiðju leiðtoga, þátttakendur eða þá sem koma til þess að sýna eða taka þátt í viðburðardagskránni. 

Svo hlakkar auðvitað einstaklega í manni þegar að samstörf eiga sér stað á milli mismunandi þátttakenda eftir að hátíðin hefur átt sér stað.

Það er kannski það sem LungA vonast eftir því að vera. Það er að segja að vera frjór jarðvegur fyrir unga sem og aldna innan listheimsins. Að vera vettvangur fyrir einstaklinga til þess að mynda tengsl við ólíklega samstarfsaðila, því það er jú samtalið við aðra sem tekur mann oft lengra í eigin sköpun og tjáningu,“ segir Tinna að lokum.

Helgina 15. -17. júlí nær LungA hápunkti sínum með tveggja daga tónleikahátíð og mun fjölbreytt flóra tónlistarfólks stíga á svið. Í hópi þeirra eru Bríet, Skatebaard, Birnir, Russian Girls, Cyber, Perko, Skrattar, Gunni Ewok, Gugusar og fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×