Fótbolti

Of mörg áföll í aðdraganda síðasta EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir í baráttu við Löru Dickenmann í leik Íslands og Sviss á EM 2017.
Dagný Brynjarsdóttir í baráttu við Löru Dickenmann í leik Íslands og Sviss á EM 2017. getty/Maja Hitij

Dagný Brynjarsdóttir segir að ýmislegt hafi orðið þess valdandi að Ísland náði ekki markmiðum sínum á Evrópumótinu í Hollandi 2017.

Miklar væntingar voru gerðar til íslenska liðsins fyrir síðasta Evrópumót enda vann Ísland sinn riðil í undankeppninni. En þegar á stóra sviðið var komið gekk illa. 

Íslendingar töpuðu fyrstu tveimur leikjunum naumlega, fyrir Frökkum og Svisslendingum, og voru þar með úr leik. Í lokaleik riðlakeppninnar tapaði Ísland svo 3-0 fyrir Austurríki og fór heim án stiga og með markatöluna 1-6.

Dagný segir að íslenska liðið hafi orðið fyrir ýmsum skakkaföllum í aðdraganda síðasta EM sem hafi haft áhrif þegar á mótið var komið.

Krossböndin gáfu sig

„Við vorum ógeðslega góðar í undankeppninni þar sem við spiluðum 4-3-3. Svo misstum við þrjá eða fjóra leikmenn í krossbandaslit, einhverjir af þeim byrjunarliðsmenn. Ég meiddist og var meidd í fimm mánuði fyrir EM. Og Hólmfríður [Magnúsdóttir] ristarbrotnaði. Liðið breyttist rosalega mikið frá því við unnum undankeppnina og fórum á EM,“ sagði Dagný í samtali við Vísi í apríl.

Auk allra meiðslanna sem dundu á íslenska liðinu eignaðist Harpa Þorsteinsdóttir barn nokkrum mánuðum fyrir EM. Hún var aðalframherji Íslands á þessum tíma og enginn skoraði meira í undankeppni EM en hún, eða tíu mörk.

Klippa: Dagný um síðasta EM

Vegna allra þessara breyttu aðstæðna breytti Freyr Alexandersson, þjálfari landsliðsins, um leikkerfi og spilaði 3-4-3 í aðdraganda EM og á mótinu.

„Ég held að fólk gleymi því svolítið að við vorum ekki alveg með sama kjarna og sömu uppstillingu og í undankeppninni. Þetta voru vonbrigði en þegar maður horfir til baka var þetta svo mikil breyting frá undankeppninni því við misstum svo marga leikmenn út,“ sagði Dagný sem sneri aftur á völlinn aðeins mánuði fyrir EM. Hún lagði upp eina mark Íslands á mótinu, fyrir Fanndísi Friðriksdóttur.

„Þetta byrjaði bara fjórum mánuðum fyrir mót. Þetta voru bara of margir leikmenn sem duttu út of stuttu fyrir mót sem olli því að takturinn fór úr liðinu.“

Orkan var búin

Sem fyrr sagði voru fyrstu tveir leikir Íslands á EM 2017 hnífjafnir og töpuðust með einu marki.

„Við gáfum ótrúlega mikið í Frakkaleikinn. Þær fengu víti sem átti ekkert endilega að vera víti. Fyrsti leikurinn fór þannig. Svo rétt töpuðum við fyrir Sviss og gegn Austurríki vorum við eins og sprungin blaðra. Ekkert undir og allir leikmenn búnir á því. Auðvitað reyndum við að vinna en ég veit ekki hvort öll orkan, líkamleg og andleg, var búin,“ sagði Dagný.

„Að mörgu leyti var frammistaðan fín í fyrstu tveimur leikjunum en úrslitin féllu ekki með okkur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×