Tíska og hönnun

Bein útsending: Túrkís dregillinn á opnunarhátíð Eurovision

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Opnunarhátíð Eurovision fer fram í höll á Ítalíu í dag.
Opnunarhátíð Eurovision fer fram í höll á Ítalíu í dag. Eurovision

Opnunarhátíð Eurovision fer fram í Reggia di Venaria höllinni í Tórínó á Ítalíu í dag. Eurovision-vikan hefst formlega með þessum viðburði en öll löndin hafa nú fengið að æfa sig á stóra sviðinu í Pala Alpitour. 

Íslenski hópurinn mun í dag hitta alla keppendurna á þessum gullfallega stað, höll umkringd ótrúlega fallegum görðum. Sýnt verður frá opnunarhátíðinni í beinni útsendingu á Youtube-síðu keppninnar og verður hægt að fylgjast með öllu í spilaranum hér fyrir neðan. 

Viðburðurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Blaðamenn frá öllum heimshornum munu svo fá tækifæri til þess að kalla á keppendur og grípa þá í viðtöl á meðan þeir ganga eftir túrkís bláa dreglinum.  Við verðum auðvitað á svæðinu ásamt hinum íslensku blaðamönnunum og hlökkum til að sjá íslenska hópinn skína skært.

Við hittum Systur seint í gær og voru þær ótrúlega spenntar fyrir opnunarhátíðinni. Í nýjasta þættinum af Júrógarðinum segir Ellen Loftsdóttir stílisti hópsins að karkaterar íslensku keppendanna fái að skína í gegn á túrkís dreglinum í dag. 

„Það verða engir galakjólar.“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum. 

Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi. 


Tengdar fréttir

Brösuleg æfing hjá Svíum

Fyrsti dagur okkar á Eurovision var heldur betur viðburðarríkur. Við mættum í blaðamannahöllina og tókum púlsinn á Kristínu Kristjánsdóttur hjá FÁSES, félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Hin spænska Chanel í uppáhaldi hjá blaðamönnum í Tórínó

Í dag æfa í Eurovision höllinni þau fimm lönd sem eru örugg áfram á úrslitakvöldið eftir viku. Sigurvegarar síðasta árs, Ítalir, taka nokkrar æfingar á sviðinu ásamt keppendunum frá Bretlandi, Frakklandi, Spáni og Þýskalandi. 

Systurnar sagðar eiga betri líkur á að komast á­fram eftir fyrstu æfingu

Systurnar Sigga, Beta og Elín eru mættar til Tórínó á Ítalíu þar sem keppt verður í Eurovision í næstu viku. Fyrstu myndskeiðin af æfingum systranna hafa verið birt og Eurovisionsérfræðingar telja systurnar eiga enn betri líkur á að fá framgang í keppninni eftir að hækkun var bætt í lagið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×