Fótbolti

Kristian lífgaði aðeins upp á veika von Íslands með laglegu marki

Sindri Sverrisson skrifar
Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði fallegt mark fyrir Ísland í dag sem tryggði liðinu eitt stig.
Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði fallegt mark fyrir Ísland í dag sem tryggði liðinu eitt stig. vísir/bára

Kristian Nökkvi Hlynsson tryggði Íslandi stig gegn Kýpur á útivelli í dag, í undankeppni EM U21-landsliða í fótbolta, með laglegu marki á síðustu mínútu uppbótartíma.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli sem verða að teljast vonbrigði fyrir íslenska liðið eftir frábæra ferð til Portúgals þar sem Ísland náði einnig í eitt stig á föstudaginn.

Kýpur komst yfir um miðjan fyrri hálfleik með marki Giannis Gerolemou sem fylgdi á eftir skoti félaga síns úr dauðafæri sem Hákon Rafn Valdimarsson náði að verja út í teiginn.

Íslenska liðið reyndi hvað það gat að jafna metin en það tókst ekki fyrr en í blálokin þegar Kristian, leikmaður hollenska stórliðsins Ajax, fékk boltann utarlega í teignum vinstra megin og skrúfaði hann upp í fjærhornið.

Langt í Grikkland og Portúgal

Stigið gefur veika von um möguleika á að komast upp úr riðlinum en til þess þarf Ísland að treysta á að Grikkland eða Portúgal tapi þeim leikjum sem liðin eiga eftir, og Ísland að vinna heimaleikina sína þrjá í júní, gegn Liechtenstein, Hvíta-Rússlandi og Kýpur.

Grikkland og Portúgal eiga eftir tvo innbyrðis leiki og Grikkland á svo eftir að mæta Kýpur á útivelli en Porúgal á eftir útileik gegn Liechtenstein og Hvíta-Rússlandi.

Grikkland og Portúgal mætast í dag í Grikklandi. Fyrir þann leik eru Grikkir efstir í riðlinum með 17 stig úr 7 leikjum, Portúgal með 16 stig úr 6 leikjum, og Ísland og Hvíta-Rússland með 9 stig úr 7 leikjum. Liechtenstein er án stiga. 

Aðeins efsta liðið kemst beint áfram í lokakeppnina en liðið í 2. sæti, sem Ísland á enn möguleika á að ná þó að ekki séu þeir miklir, kemst í umspil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×