Menning

Snorri Ásmundsson: „Orðið „gaman“ er svo upplífgandi, sérstaklega á okkar tímum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listamanninum Snorra Ásmundssyni finnst meðal annars gaman að mála og dansa og lifa.
Listamanninum Snorra Ásmundssyni finnst meðal annars gaman að mála og dansa og lifa. Aðsend

Listamaðurinn Snorri Ásmundsson opnar sýninguna GAMAN Í Portfolio Gallerí, Hverfisgötu 71, á morgun, laugardaginn 12. mars. Opnunin stendur frá klukkan 16:00-18:00 og eru öll velkomin. Blaðamaður hafði samband við Snorra og fékk nánari innsýn í hans listræna heim.

Félagsleg bannorð

„Innblásturinn af sýningunni er eiginlega hinn síendurtekni óður minn til lífsins,“ segir Snorri en hugmyndavinnan hefur verið lengi í bígerð. „Ég fór á stað með hugmyndina að þróa málverkið meira en ég er vel traumaður af ástandinu á jörðinni núna og átti erfitt með einbeitingu. Ég er líka með nokkur eldri verk á sýningunni sem ég hef reyndar aldrei sýnt í raunheimi áður.“

Snorri er fæddur árið 1966 og hefur oft í gegnum tíðina reynt að hafa áhrif á samfélagið með opinberum viðburðum og viðamiklum sýningum. Það gerir hann meðal annars með því að vinna með félagsleg bannorð eins og stjórnmál og trúarbrögð.

Skilaboð að handan

Verkið umrædda í sýningarskránni með texta Godds.Listaverk: Snorri Ásmundsson/Aðsend

Fjallað er um eitt verk af sýningunni í sýningarskrá í texta sem skrifaður af Goddi. „Þar segi ég frá merkilegri draugasögu þar sem ég fékk skilaboð og bón að handan. Goddi þótti frásögn mín svo merkileg að hann hafði hana í textanum.“ Hægt er að lesa texta Godds hér

Takmörk og ögrun gilda

Í gegnum tíðina hefur Snorri fylgst með viðbrögðum samfélagsins, það er viðbrögð fólks þegar viðteknum gildum er snúið á hvolf. Til dæmis þegar vanmáttugur einstaklingur tekur vald í sínar hendur sem venjulega er úthlutað með fyrirfram ákveðnum reglum. Með listsköpun sinni er Snorri fyrst og fremst að ögra félagsfræðilegum og trúarlegum gildum. Hann leitar eftir skörpum viðbrögðum og skoðar takmörk samferðamanna sinna jafnt sem hans eigin.

Verk eftir Snorra Ásmundsson sem verður á sýningunni GAMAN.Listaverk: Snorri Ásmundsson/Aðsend

Kattaframboð á Akureyri

„Ég kom hingað til Íslands úr skóginum úr Svíþjóð þar sem ég hafði dvalið á annað ár til að vinna að tveimur einkasýningum hér á landi. Önnur hér í gallerí Portfólíó og hin í listasafni Reykjanesbæjar. Fyrri sýningunni var frestað um mánuð út af Covid og hinni um eitt og hálft ár vegna umfangsins, enda var um að ræða gjörninga arkíf mitt eins og það leggur sig.“ Því ákvað Snorri að vera á Íslandi fram að sýningunni og hefur ýmislegt á daga hans drifið.

„Sýning mín í París sem átti að opna í vor frestaðist líka fram á haustið svo ég ákvað að fara til Kaliforníu í nokkra mánuði,“ segir Snorri sem fer í apríl mánuði vestur um haf, í miðjum kosningaslag hjá sér. „Ég er að stýra kattarframboði á Akureyri þar sem við ætlum að koma köttum í bæjarstjórn, enda veitir ekki af því. Kattahatur er mikið á Akureyri og ég elska ketti og lít á mig sem verndari katta enda fæ ég oft verkefni að passa ketti í lengri eða skemmri tíma. “

Borgarstjóra og forseta framboð

Snorri hefur verið starfandi sem myndlistarmaður í tæp þrjátíu ár en á þeim tíma hefur hann staðið fyrir ýmsum samfélags gjörningum sem hafa gjarnan vakið mikla athygli. Þar má nefna borgarstjóra framboð og forseta framboð. Einnig hefur Snorri boðið landslýð aflátsbréf til sölu gegn fyrirgefningu syndanna. 

Hann hefur látið til sín taka sem gagnrýnandi á samfélagslegt ástand og notar til þess ýmsa listmiðla og má sem dæmi nefna málverk og teikningu, skúlptúr og innsetningar auk þess að hafa tekið kvikmyndalistina í sína þjónustu til að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Aðspurður um titil sýningarinnar, Gaman, segir Snorri að gaman sé einfaldlega uppáhalds orðið sitt og því hafi það orðið fyrir valinu.

„Af því það er alltaf gaman hjá mér og orðið gaman er svo upplífgandi, sérstaklega á okkar tímum. Mér finnst gaman að mála og að dansa og að lifa.“

Sýningin stendur í 2 vikur og lýkur 26. mars.


Tengdar fréttir

Táknmyndin fagra í gulu regnkápunni

Baráttukonan unga Greta Thunsberg er ekki allra en höfðar svo sterkt til Snorra Ásmundssonar að hann málaði af henni tvö portrett.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×