Fjáröflunin í Vinabæ snerist upp í andhverfu sína eftir hrunið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. mars 2022 15:35 Guðlaugur Friðgeir Sigmundsson hefur haft veg og vanda af bingóinu í Vinabæ í áratugaraðir. Stöð 2/Arnar Guðlaugur Friðgeir Sigmundsson, framkvæmdastjóri Vinabæjar sem stóð fyrir bingókvöldum í Skipholti 33 í rúma þrjá áratugi, segir marga ekki gera sér grein fyrir ástandinu í þjóðfélaginu. Þar séu margir einstæðingar og hluti þeirra sem sótt hafi bingó í Vinabæ hafi varla farið út fyrir hússins dyr, nema til að fara í bingó.
Það fór sjálfsagt fram hjá fáum að síðasta bingóið fór fram í Vinabæ á mánudagskvöldið. Fastagestir lýstu yfir mikilli sorg á þessum tímamótum en framkvæmdastjóri Vinabæjar segir ástæðuna einfalda. Alltof fáir hafi mætt á kvöldin og reksturinn verið neikvæður. Rætt var við bingógesti í kvöldfréttum á mánudagskvöld. Fyrstu bingókvöldin voru haldin í Glæsibæ og síðar Tónabæ. Félagið þurfti svo að finna nýjan stað þegar félag eldri borgara hugðist kaupa Tónabæ af Reykjavíkurborg. Því fór svo að samtökin keyptu Skipholt 33 á 25 milljónir króna en kostnaður við endurbætur nam 35 milljónum króna til viðbótar. Fram að því var húsið þekkt sem Tónabíó þar sem finna mátti bíósal og húsnæði Tónlistarskólans í Reykjavík sem reisti húsið árið 1964. Fjáröflun sem snerist upp í andhverfu sína Guðlaugur Friðgeir segir að fjáröflun í formi bingókvölda fyrir bindindissamtökin hafi snúist upp í andhverfu sína. Spilurum hafi fækkað stöðugt og tap orðið á rekstrinum. Kaflaskil hafi orðið í kringum hrunið 2008. „Við vorum með þrjú bingókvöld fram að hruni. Þá urðum við að fækka niður í tvö kvöld. Fólk hvorki kom né hafði peninga til að spila fyrir,“ segir Guðlagur. Síðan hafi bingóið í raun ekki náð sér á strik. Síðasta bingóið í Vinabæ var á mánudagskvöldið þegar þessi mynd var tekin. Söguleg stund eftir þrjá áratugi af bingó.Vísir/Arnar Við bætist heilmikill rekstrarkostnaður á húsnæðinu og annar tilkostnaður hafi hækkað feikilega mikið. Covid-faraldurinn hafi ekki hjálpað til, Vinabær ekki fengið neina styrki og verið lokað fyrir bingó í fleiri mánuði. Borð og stólar til sölu Húsnæðið var auglýst á sölu fyrir 290 milljónir í fyrra. Ekki seldist fasteignin og var hún svo auglýst á tilboði. Nýlega var tilboð samþykkt í húsnæðið. Guðlaugur Friðgeir vill ekki gefa upp kaupverðið en hann sé ekki sáttur við kaupverðið. Það verði þó ekki gefið upp. Húsið verði afhent þann 1. apríl og nú sé bara pökkun fram undan. „Ef þú veist um einhvern sem vill kaupa stóla og borð - þá verður það til sölu,“ segir Guðlaugur. Hann staldrar við og vill beina orðum sínum til bingóspilara. Margir hverjir voru því sem næst niðurbrotnir á mánudagskvöldið. „Innilegar þakkir fyrir það að hafa komið og sýnt þessu áhuga á meðan þetta var. Það eru fjölmargir sem hafa gaman af því að spila, ekki bara að spila bingó heldur var þetta að stórum hluta félagsmiðstöð,“ segir Guðlaugur og er hugsi. Margt fólk fari ekki neitt „Það gera ekki allir sér grein fyrir hvernig ástandið er í okkar litla þjóðfélagi. Það er svo stór hópur af fólki sem fer ekki eitt né neitt,“ segir Guðlaugur. Það sé mikið til eldra fólk. „Þegar það kom í bingó sagði það stundum: „Ég fer aldrei neitt - ég fer í bingó og það er það eina sem ég læt eftir mér“,“ segir Guðlaugur. Hann er hugsi yfir því hvernig fjölskyldur og afkomendur fólksins standi sig. Bingótölur hafa verið lesnar upp í Vinabær frá árinu 1990.Facebook/Bingó í Vinabæ „Þó að maður viti að þetta blessaða fólk á fjölskyldur og afkomendur þá er það samt ekki svoleiðis að fólk geti fengið fólkið sitt til að keyra og sækja í bingó. Afkomendur nenna ekki að sinna því,“ segir Guðlaugur. Guðlaugur segist hafa kynnst þessu þegar hann hafi farið að ræða við fólk í bingósalnum. Fleiri þurfi að mæta „Maður áttar sig á því hérna að það er svo mikið af einstæðingum í þjóðfélaginu, sem eru bara einir, og fara aldrei út á meðal fólks - nema að koma hingað í bingóið,“ segir Guðlaugur. Fólk kom hingað, fékk sér kaffi, spjallaði, settist hjá einhverjum og kynntist einhverjum. Hann hafi heyrt vangaveltur fólks um hvað það eigi nú að gera. Fólk hafi til að mynda áhyggjur af bingólausum páskum. En væri ekki hægt að halda bingóinu gangandi á nýjum stað? „Til þess að það sé hægt þarf fólk að sækja bingóið þegar það er í gangi,“ segir Guðlaugur. Mætingin hafi einfaldlega ekki verið nógu góð síðustu ár. Þrátt fyrir það hafi verið miklu hærra vinningshlutfall í bingóinu í Vinabæ en í bingó erlendis. Mun fleiri blöð þurfi að selja upp í vinninga í Vinabæ en annars staðar. „Við fórum einu sinni í að lækka vinningana og hækka verðið á blöðunum. Það hjálpaði okkur á þeim tíma. En síðan hefur allur kostnaður aukist og það er ekki endalaust hægt að hækka verð á blöðum og lækka vinningana.“
Eldri borgarar Reykjavík Tengdar fréttir Bingóspilarar einróma um lokun Vinabæjar: „Ömurlegt!“ Hinsta bingóið í Vinabæ stendur nú yfir. Eftir bingóið í kvöld verður dyrum bingósalsins vinsæla lokað fyrir fullt og allt. Bingóspilarar eru ekki kátir með breytingarnar. 28. febrúar 2022 19:29 Bingó í Vinabæ heyrir sögunni til eftir fjörutíu ára starfsemi Nú fer hver að verða síðastur að spila bingó í Vinabæ en aðeins þrjú bingókvöld eru eftir. Ástæðan er einföld; húsnæðið hefur verið selt undan starfseminni. 20. febrúar 2022 20:40 Mest lesið Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Innlent Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Innlent Fleiri fréttir „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Sjá meira
Bingóspilarar einróma um lokun Vinabæjar: „Ömurlegt!“ Hinsta bingóið í Vinabæ stendur nú yfir. Eftir bingóið í kvöld verður dyrum bingósalsins vinsæla lokað fyrir fullt og allt. Bingóspilarar eru ekki kátir með breytingarnar. 28. febrúar 2022 19:29
Bingó í Vinabæ heyrir sögunni til eftir fjörutíu ára starfsemi Nú fer hver að verða síðastur að spila bingó í Vinabæ en aðeins þrjú bingókvöld eru eftir. Ástæðan er einföld; húsnæðið hefur verið selt undan starfseminni. 20. febrúar 2022 20:40