Erlent

Vildi ferðast og eignast hund en dreymir nú um sprengju­byrgi til að verja fjöl­­­skylduna

Eiður Þór Árnason skrifar
Líkt og margir íbúar Kænugarðs fékk Maria afhent vopn hjá úkraínskum stjórnvöldum til að verjast árás Rússa.
Líkt og margir íbúar Kænugarðs fékk Maria afhent vopn hjá úkraínskum stjórnvöldum til að verjast árás Rússa. Aðsend

23 ára úkraínskur kennari sem flúið hefur Kænugarð segir að Rússar hafi skotið níu ára stelpu og foreldra hennar til bana á götum borgarinnar í gær. Maria Huresh segir að átökin hafi lagt líf Úkraínumanna í rúst og hún þrái nú fátt heitar en að eignast heimili með stóru sprengjubyrgi til að tryggja öryggi fjölskyldu sinnar.

Maria segist vera hrædd en um leið þakklát fyrir að hún, fjölskylda hennar og vinir séu allir á lífi. Hún segir það þyngra en tárum taki að horfa upp á skothríð, sprengjuregn og mannfall síðustu daga. Borgin sem hún hafi alist upp í sé nú óþekkjanleg og átökin gjörbreytt lífi hennar á svipstundu.

Maria yfirgaf Kænugarð ásamt systkinum sínum á föstudag og er nú í um tveggja klukkustunda fjarlægð frá höfuðborginni. Hún vill ekki gefa upp nánari staðsetningu sína vegna ótta um öryggi sitt en úkraínsk stjórnvöld hafa hvatt fólk til að slökkva á GPS-virkni síma sinna til að koma í veg fyrir að Rússar geti mögulega fylgst með því hvar fólk safnist saman.

Staðgengill borgarstjóra Kænugarðs greindi frá því í gær að Pauline, sem var nemandi í fjórða bekk í Kænugarði, hafi verið skotin til bana í gærmorgun ásamt foreldrum sínum. Systkini hennar eru sögð vera á sjúkrahúsi.

Telur dagana frá innrásinni

Þegar Maria yfirgaf heimili fjölskyldunnar á föstudag rann upp fyrir henni að hún myndi mögulega aldrei sjá það framar. Hún segist eiga erfitt með að muna hvaða vikudagur sé og einungis telja dagana sem liðnir eru frá því að innrás Rússa hófst.

Mikil fjöldi fólks hefur reynt að yfirgefa Kænugarð frá því að átökin hófust í Úkraínu og gengur umferð hægt. Maria segir að aðrir í fjölskyldunni hafi verið á faraldsfæti í um tuttugu klukkustundir og ekki enn verið komin á áfangastað seint í gær.

Allir sem vettlingi geta valdið reyni nú að verja Kænugarð, þar á meðal faðir hennar og vinir. Stjórnvöld hafa bannað öllum fullorðnum karlmönnum að yfirgefa landið og hvatt Úkraínumenn búsetta erlendis til að snúa aftur og leggja baráttunni lið.

Faðir Mariu kvaddi litla bróðir hennar skömmu áður en hann tók upp vopn til varnar Úkraínu.Aðsend

Viss um að úkraínska þjóðin hafi betur

„Á mánudag vildi ég fara í leikhús og kaupa bók, jafnvel lesa einhver tímarit en nú vil ég bara eiga líf,“ segir Maria.

Hún bætir við að það hafi verið skrítin upplifun að kenna nemendum sínum á aldrinum 11 til 15 ára sögu á meðan þau hlustuðu eftir sprengjum fyrir utan.

„Þetta var eins og vera hluti af einhverri skringilegri kvikmynd og ég skildi ekki hvað var að gerast.”

Maria segist þó vera full sjálfstrausts og hafa fulla trú á því að Úkraínumenn muni bera sigur úr býtum gegn Rússum. Úkraínski herinn hafi stóreflst á síðustu árum og bandalagsþjóðir veitt honum aðstoð. Þetta sé ekki sami her og reyndi að koma í veg fyrir innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014 og það sjáist vel á því að Rússar hafi ekki enn náð stjórn á stærstu borgum Úkraínu, þvert á áætlanir sínar.

„Þegar ég heyri í skotfærum fólksins míns þá veit ég að þetta verður allt í lagi. Borgin mín verður okkar og landið okkar mun búa við frelsi,“ segir Maria.

Svona lítur stofan út hjá óléttri vinkonu Mariu sem býr í Kænugarði eftir árásir Rússa. Hún dvaldi í sprengjubyrgi undir byggingunni í nótt.Aðsend

Vildi ferðast en vill nú kjallara

Líkt og margir á hennar aldri dreymir Mariu um að eignast eigið heimili. Í ljósi aðstæðna er nú efst á óskalistanum að hafa kjallara til að tryggja öryggi sitt og framtíðarfjölskyldu. Kjallarinn eigi að vera stór, vel búinn neysluvatni og matarbirgðum og þurfi að grafinn djúpt niður í jörðu.

„Vegna þess að við eigum nágranna sem hafa viljað tortíma okkur í meira en 300 ár,“ segir Maria. Átökin hafi á vissan átt breytt henni.

„Þetta er svo skrítin tilfinning. Ég er ung kona. Ég vildi ferðast, ég vildi eignast eigið heimili, ég vildi eiga stóran hund. En núna vil ég kjallara. Svo stóran að hann verður öruggt svæði fyrir fjölskyldu mína og framtíðarbörnin mín.”

Telji sig vera að gera Úkraínu greiða

Maria segir að Rússi sem hún hafi þekkt frá árinu 2013 hafi nýlega haft samband við sig og sagt að það væri Úkraínumönnum að kenna að Rússar hafi þurft að hefja innrásina. Á sama tíma hafi hann lýst yfir áhyggjum af öryggi hennar og fjölskyldunnar.

„Hann sagði að Pútín vildi hjálpa okkur og að taldi við yrðum ánægð.“ Maria furðaði sig á þessum skilaboðum og leið eins og þau kæmu frá einhverjum sem væri staddur í öðrum heimi. Íbúar Úkraínu þurfi svo sannarlega ekki á aðstoð Pútíns Rússlandsforseta að halda.

Maria segir að í raun hafi engum tekist að auka þjóðernisstolt og sameina úkraínsku þjóðina jafn mikið og Pútín.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×