Watford hélt hreinu gegn Man. Utd

Atli Arason skrifar
Bruno Fernandes og félögum tókst ekki að skora gegn Watfod (Photo by Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images)
Bruno Fernandes og félögum tókst ekki að skora gegn Watfod (Photo by Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images)

Manchester United gerði markalaust jafntefli við Watford á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag. 

Manchester United fékk aragrúa af marktækifærum til að ganga frá leiknum en inn vildi boltinn ekki. Ronaldo kom boltanum í netið í fyrri hálfleik en hann var í rangstöðu þegar boltinn barst til hans. United vildi fá vítaspyrnu á 55. mínútu leiksins en Kevin Friend, dómari leiksins, var ekki sammála.

Þrátt fyrir 23 tilraunir þá tókst United ekki að skora en úrslitin þýða að liðið er áfram í fjórða sæti deildarinnar með 47 stig eftir 27 leiki, tveimur stigum meira en Arsenal sem á þó þrjá leiki til góða á Manchester United.

Watford er með 19 stig í 19. sæti eftir 26 leiki, þremur stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira