Tíska og hönnun

„Maður tekur ekki eftir að þetta sé gervi“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Lína Birgitta á fatamerkið Define The Line Sport og Gummi starfar sem kírópraktor. Bæði eru þau mjög vinsæl á samfélagsmiðlum eins og Instagram.
Lína Birgitta á fatamerkið Define The Line Sport og Gummi starfar sem kírópraktor. Bæði eru þau mjög vinsæl á samfélagsmiðlum eins og Instagram. Undireins

Í nýjasta þættinum af Snyrtiborðið með HI beauty fara þær Heiður Ósk og Ingunn Sig í heimsókn til parsins Línu Birgittu Sigurðardóttur og Guðmundar Birkis Pálmasonar, sem er betur þekktur sem Gummi Kíró.

Parið skemmtilega á mjög margt sameiginlegt. Þau eru miklir fagurkerar og spá mikið í tískunni en hugsa líka bæði mjög vel um húðina og hárið. Gummi sýndi alla sína uppáhalds herrailmi í þættinum og kom í ljós að einn þeirra er í miklu uppáhaldi hjá Línu Birgittu.

„Ég á einhverja geggjaða tengingu við Chanel og ég tek alveg eftir því þegar hann setur hana á sig,“ útskýrir hún í viðtalinu.

„Það er trixið sko,“ er Gummi þá snöggur að bæta við.

Hægt er að horfa á innlitið til Gumma og Línu Birgittu í spilaranum hér fyrir neðan.

Alltaf með varasalva í veskinu

Gummi notar dagkrem alla daga og svo dropa til að fríska upp á andlitið en hann er alltaf með varasalva og rakasprey í veskinu til að halda raka á andlitinu yfir daginn. 

„Svo hreinsa ég húðina mjög mikið.“

Hann djúphreinsar húðina þrisvar í viku. Notar hann líka maska mjög reglulega og eru það nokkrir mismunandi maskar frá Bláa lóninu.

„Ég nota Algae mask, hann er mjög „pótant“ og sterkur. En ég nota líka mjög mikið Mineral mask og þá verður maður alveg vel stökkur í framan.“

Gummi hugsar mjög vel um húðina.Undireins

Kaffi fyrir silkimjúka fótleggi

Á líkamann notar hann olíur. Lína Birgitta er aðdáandi kaffiskrúbba og notar þá mikið. Hún notar Loreal sykur- og kaffiskrúbbinn á andlitið þrisvar í viku og í hverri einustu viku notar hún svo kaffiskrúbbinn frá SkinBoss, sem er íslenskt merki sem framleitt er í frumkvöðlasetrinu Eldey.

„Það verður allt út í kaffidæmi en það er alveg þess virði. Ég get ekki farið í sturtu án þess að nota „body-lotion“ en þú kemur úr sturtunni og þú þarft ekki neitt því olíurnar eru búnar að gera þig silkimjúkan.“

Heiður Ósk og Ingunn Sig eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins. Í þættinum fengu þær að vita allt um snyrtivörur Línu Birgittu.Undireins

Í þættinum sína þau Gummi og Lína Birgitta sínar uppáhalds snyrtivörur, tala um morgunrútínuna sína og uppáhalds tískumerkin sín, svara hraðaspurningum og auðvitað taka þau þátt í augnháraáskorun Snyrtiborðsins. Þetta er sennilega í fyrsta skipti sem Gummi notar gerviaugnhár. Förðunarráð þáttarins er auðvitað á sínum stað.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Snyrtiborðið með HI beauty kemur út á Lífinu á Vísi alla miðvikudaga og er hægt að horfa á eldri þætti HÉR


Tengdar fréttir

„Hyljari er ein af mínum uppáhalds vörum“

Í hverjum þætti af Snyrtiborðinu með HI beauty gefa þær Ingunn Sig og Heiður Ósk góð ráð tengd förðun. Í fyrsta þættinum talar Heiður Ósk um hyljara. 

Hailey Bieber mögulega að setja á markað sitt eigið vörumerki

HI beauty teymið Heiður Ósk og Ingunn Sig, þáttastjórnendur Snyrtiborðsins, lifa og hrærast í heimi snyrtivara, förðunar og hárs. Í nýjasta pistlinum velta þær fyrir sér hvað sé að gerast hjá ofurfyrirsætunni Haylie Bieber, eiginkonu Justin Bieber. Við gefum þeim orðið.

Fengu loksins að fara heim til viðmælenda

Leikkonan Aldís Amah Hamilton verður gestur í fyrsta þættinum af glænýrri þáttaröð af Snyrtiborðinu með HI beauty. Þættirnir verða sýndir hér á Lífinu á Vísi næstu átta miðvikudaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×