Tíska og hönnun

Fengu loksins að fara heim til viðmælenda

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Heiður Ósk og Ingunn Sig mynda HI beauty teymið. Þær hafa áralanga reynslu úr förðunarbransanum hér á landi.
Heiður Ósk og Ingunn Sig mynda HI beauty teymið. Þær hafa áralanga reynslu úr förðunarbransanum hér á landi. Undireins

Leikkonan Aldís Amah Hamilton verður gestur í fyrsta þættinum af glænýrri þáttaröð af Snyrtiborðinu með HI beauty. Þættirnir verða sýndir hér á Lífinu á Vísi næstu átta miðvikudaga.

HI beauty mynda þær Heiður Ósk og Ingunn Sig, en þær eru förðunarfræðingar, eigendur Reykjavík Makeup School og eru auk þess pistlahöfundar og þáttastjórnendur hér á Lífinu á Vísi. Í þáttunum heimsækja þær þekkta Íslendinga og ræða um snyrtivörur, hárvörur, förðun og margt fleira áhugavert. 

„Nýja þáttaröðin af Snyrtiborðinu er skemmtileg og töluvert öðruvísi en síðasta sería. Með afléttingum fengum við loksins að fara heim til viðmælenda okkar og sáum við hvernig þau gera sig til fyrir daginn. Það var svo gaman að sjá fjölbreytt umhverfi og rútínu og lærðum við ekkert smá mikið af gestum þáttarins. Við tókum síðan upp á því að hafa áskorun fyrir hvern og einn viðmælenda og stilltum þessu upp í æsispennandi og skrautlega augnhárakeppni sem verður gaman að fylgjast með út seríuna,“ segir Heiður Ósk í samtali við Vísi.

„Við lögðum upp úr því að hafa þættina fjölbreytta og pössuðum við að viðmælendurnir fylgdu því. Við hittum meðal annars Patrek Jamie, Aldísi Önnu Hamilton, Dóru Júlíu og Lindu Ben en listinn er alls ekki tæmdur þar,“ segir Ingunn spennt. 

Frá tökum á Snyrtiborðinu.Undireins

Nýja þáttaröðin er framleidd af Undireins fyrir Vísi og voru stelpurnar glaðar að þurfa ekki sjálfar að sjá um upptökuna líkt og í fyrstu þáttaröðinni. 

„Samstarf okkar við framleiðslufyrirtækið Undireins hefur gengið eins og í sögu. Við þekktumst aðeins frá fyrri störfum og erum öll á svipuðum aldri og með gríðarlegan metnað fyrir þeim verkefnum sem við tökum að okkur. Þau skildu algjörlega sýn okkar á þáttunum og gætum við ekki verið ánægðari með útkomuna. Við getum ekki beðið eftir að vinna nánar með þeim í framtíðinni,“ segir Heiður.

Frá tökum á Snyrtiborðinu.Undireins

„Við viljum enda á því að þakka öllum gestunum fyrir að taka svona vel á móti okkur og vonumst til að áhorfið verði jafn skemmtilegt og vinnan á bakvið þættina.“

Þær Heiður og Ingunn munu mæta í Brennsluna á FM957 og ræða nýju þáttaröðina. 

Fyrsti þáttur kemur út á morgun en fyrstu þáttaröðina má skoða HÉR á Vísi


Tengdar fréttir

Uppáhalds lúkkin okkar úr Emily in Paris

Netflix þættirnir Emily in Paris með Lily Collins hafa vakið mikla athygi og þá sérstaklega þegar kemur að klæðnaði, förðun og hári. Heiður Ósk og Ingunn Sig í HI beauty tóku saman sín uppáhalds lúkk úr þáttunum. Við gefum þeim orðið. 

Stærstu trendin árið 2022 að mati HI beauty

Við fengum Heiði Ósk og Ingunni Sig í HI beauty til að spá fyrir um þau trend sem verði mest áberandi í hári, förðun og snyrtivörum á þessu ári. Við gefum þeim orðið

Keyptu Reykjavík Makeup School

Förðunarfræðingarnir Ingunn Sigurðardóttir og Heiður Ósk Eggertsdóttir hafa tekið yfir rekstur Reykjavík Makeup School að fullu en þær komu upphaflega inn í rekstur hans sem meðeigendur 2020.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×