Tíska og hönnun

„Hyljari er ein af mínum uppáhalds vörum“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk er annar eiganda Reykjavík Makeup School og myndar HI beuty teymið ásamt Ingunni Sig. Þær eru pistlahöfundar á Lífinu á Vísi ásamt því að stýra Snyrtiborðinu.
Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk er annar eiganda Reykjavík Makeup School og myndar HI beuty teymið ásamt Ingunni Sig. Þær eru pistlahöfundar á Lífinu á Vísi ásamt því að stýra Snyrtiborðinu. Snyrtiborðið

Í hverjum þætti af Snyrtiborðinu með HI beauty gefa þær Ingunn Sig og Heiður Ósk góð ráð tengd förðun. Í fyrsta þættinum talar Heiður Ósk um hyljara. 

Þessa förðunarvöru er hægt að nota til að hylja bólur eða annað á húðinni en einnig til að birta ákveðin svæði. Förðunarráð þáttarins má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.  

Klippa: Snyrtiborðið með HI beauty - Hyljari

Þættirnir Snyrtiborðið með HI beauty eru sýndir á miðvikudögum á Lífinu á Vísi. Förðunarráð þáttarins var tekið upp á 101 Hotel en restin af þættinum var tekinn upp á heimili fyrsta viðmælandans í þessari nýju þáttaröð af Snyrtiborðinu. 

Fyrsti þátturinn í nýrri þáttaröð af Snyrtiborðinu var sýndur á Lífinu á Vísi á miðvikudag.Undireins/Birgitta Stefánsdóttir

Leikkonan Aldís Amah Hamilton sýnir sína förðunarrútínu í þættinum. Hún byrjaði 12 ára að farða sig og lærði snemma að gera fullkominn eyeliner. Í þessu skemmtilega viðtali ræðir hún líka um retinol, gervibrúnku, tölvuleiki, vegan snyrtivörur og svo sýnir hún hvernig hún nær fullkomnum krullum. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fengu loksins að fara heim til viðmælenda

Leikkonan Aldís Amah Hamilton verður gestur í fyrsta þættinum af glænýrri þáttaröð af Snyrtiborðinu með HI beauty. Þættirnir verða sýndir hér á Lífinu á Vísi næstu átta miðvikudaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×