Fótbolti

Úr­slita­leik Reykja­víkur­mótsins frestað vegna ó­veðurs

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Veðrið var ekki upp á marga fiska.
Veðrið var ekki upp á marga fiska. Bjarni Einarsson

Þróttur Reykjavík var 2-0 yfir gegn Íslandsmeisturum Vals í úrslitum Reykjavíkurmóts kvenna í knattspyrnu er flauta þurfti leikinn af vegna veðurs.

Ákveðið var að flauta leikinn á þó veðrið væri ekki upp á marga fiska. Þegar líða tók á leikinn versnaði veðrið hægt og bítandi. Á endanum var það orðið svo slæmt að ekki var hægt að halda leik áfram.

Staðan þegar leikurinn var flautaður af var 2-0 Þrótti í vil. Mörk liðsins skoruðu fyrrum leikmenn Vals, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Katla Tryggvadóttir.

Íslandsmeistarar Vals féllu vel inn í umhverfið.Bjarni Einarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×