Lífið

Gefur góð ráð í skammdeginu: „Virkni er óvinur þunglyndis og depurðar“

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Sálfræðingurinn Hulda Töglyes deilir nokkrum góðum ráðum við skammdegisþunglyndi sem svo margir Íslendingar glíma við á þessum árstíma.
Sálfræðingurinn Hulda Töglyes deilir nokkrum góðum ráðum við skammdegisþunglyndi sem svo margir Íslendingar glíma við á þessum árstíma.

Á þessum árstíma eru fjölmargir Íslendingar sem finna fyrir skammdegisþunglyndi, þó í mismiklum mæli. Í ofanálag geisar svo heimsfaraldur með tilheyrandi skerðingu á félagslífi sem einnig hefur áhrif. Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur segist finna fyrir því í sínu starfi að það sé þyngra yfir fólki nú en vanalega. Vísir fékk Huldu til þess að deila nokkrum ráðum með lesendum sem gott er að hafa í huga þar til birta tekur á nýjan leik.

Hvað er þetta umtalaða skammdegisþunglyndi og hvernig lýsir það sér?

Þetta eru í raun depurðareinkenni og þyngsli sem láta frekar sjá sig á þeim tíma þegar daginn styttir á haustin og þangað til hann fer að lengja aftur að vori. Á Íslandi verður auðvitað mjög dimmt og mörgu fólki finnst erfitt að sjá varla til sólar í margar vikur í röð, vakna í myrkri, keyra heim seinnipartinn í myrkri og sofna í myrkri.

„Þetta lýsir sér til dæmis í því að fólk hefur minni orku, minni áhuga á hlutum sem það hafði áhuga á áður, svefninn fer í óreglu, stundum sefur fólk of mikið eða leggur sig á daginn.“

Svo hefur hefur fólk stundum komið sér upp rútínu sem fer úr skorðum í skammdeginu, til dæmis dettur hreyfing út, það verður gjarnan erfiðara að fara á æfingu eða hafa sig út í göngutúr í kulda og myrkur.

Sumu fólki líður mjög illa og er með mikil þunglyndiseinkenni, finnur fyrir vonleysi eða tilgangsleysi, einangrar sig jafnvel og hefur sjálfsvígshugsanir.

Upp að hvaða marki er eðlilegt að glíma við skammdegisþunglyndi og hvenær myndirðu segja að það væri ráðlagt að leita sér faglegrar aðstoðar?

Nú hef ég búið á Íslandi alla ævi og held að þetta hafi einhver áhrif á ansi mörg okkar. Það er kannski alveg eðlilegt að það sé auðveldara að vakna og koma sér af stað í birtu og sól en í slyddu, myrkri og frosti.

Ég held samt sem áður að mörg sem hafa búið hér á Íslandi í langan tíma hafi ef til vill komið sér upp bjargráðum við þessu, hafi til að mynda keypt sér dagljós, dagljósaklukkur, haldið hreyfingu eða útivist í rútínu og passað upp á svefninn til að sporna við því að detta úr takti.

En svo eru líka mörg sem líður mjög illa og finna fyrir mikilli truflun í daglegu lífi og þá er mikilvægt að leita aðstoðar því það er alltaf eitthvað hægt að gera til að fá hjálp við ástandinu og slæmri líðan.

Hver eru þín bestu ráð til þess að hlúa að andlegri líðan í skammdeginu?

Ég myndi segja að halda sem fastast í góðar venjur eins og að fara að sofa á sama tíma og vakna á sama tíma, sinna hreyfingu eða útivist og þá er sniðugt að fara út þegar bjart er. Næring er líka mikilvæg og án þess að ég sé næringarfræðingur skiptir miklu máli fyrir okkur sem búum svo norðarlega á jörðinni að taka D-vítamín.

„Ég starfa þannig að ég vil skoða allt heildrænt og spyr fólk gjarnan hvort það hafi farið í blóðprufu nýlega ef líðan hefur snarversnað. Oft kemur í kjölfarið í ljós járnskortur, B12 skortur eða D-vítamínskortur. En allt þetta hefur áhrif á líðan okkar. Það er nefnilega ekki hægt að skilja að huga og líkama.“

Hvað varðar félagslega partinn myndi ég leggja áherslu á það að fólk héldi áfram að tengjast sínum nánustu og eiga nærandi stundir með þeim. Einangrun er nefnilega besti vinur þunglyndisins og ef við einangrum okkur mikið nærum við þunglyndið ef svo má að orði komast. Þá verður líðan gjarnan verri.

Fyrir mörg skiptir líka máli að halda heimilinu snyrtilegu, draga upp gardínur og opna glugga alla morgna, búa um rúm osfrv.

Einnig er mikilvægt að sinna áfram áhugamálum, prófa eitthvað nýtt og halda sér í virkni. Virkni er einmitt einn óvinur þunglyndis og depurðar.

Það er svo margt sem við getum gert til að halda depurð og kvíða í skefjum en oft þurfum við hjálp með það. Það er ekkert óeðlilegt við það að fá faglega sálfræðiaðstoð á einhverjum tímapunkti í lífinu.

Er eitthvað sem við ættum að forðast að gera í skammdeginu?

Já, að einangra okkur, sitja of lengi í einu fyrir framan skjá, hætta að hreyfa okkur, drekka mikið áfengi eða vera í vanvirkni. Þetta eru allt hlutir sem láta okkur gjarnan líða verr.

Á Covid tímum er fólk oft að vinna heima og þá er einstaklega mikilvægt að fara út úr húsi þó það sé ekki nema göngutúr í hverfinu eða í búðina eða stutt heimsókn til einhvers.

Það er líka mikilvægt að vinna ekki lengi í sama rými og við sofum. Þetta getur truflað svefn og ættum við að forðast það að vinna eða læra uppi í rúmi eða í svefnherberginu.

Góður kollegi minn segir alltaf að þunglyndið uni sér best á sem minnstum radíus. Gott er að hafa það í huga og skipta reglulega um umhverfi á þann hátt sem hægt er.

Ofan á skammdegið, þá eru margir að lenda í sóttkví eða einangrun og það getur tekið enn frekar á geðheilsuna. Hvað myndirðu ráðleggja þeim einstaklingum?

Í raun bara að reyna að halda sem eðlilegustum takti, ef fólk fer í sturtu þegar það vaknar að halda því áfram, halda matartímum áfram á sama tíma, svefni og hreyfingu ef hægt er. Eins að reyna að tengjast sínum nánustu og loka sig ekki af.

„Gott getur verið að minna sig á að þetta er tímabundið ástand sem mun taka enda en að því sögðu þurfum við ekki að fara í pollýönnuleik, okkur má alveg líða illa og finnast þetta erfitt. En reynum þá að tala um það, tengjast og styðja hvort annað.“

Hægt er að fylgjast með Huldu á Instagram þar sem hún miðlar einföldu en hagnýtu fræðsluefni til fylgjenda sinna með það að markmiði að stuðla að sjálfsmildi í kröfuhörðum heimi.


Tengdar fréttir

Ætlaði að hafa allt fullkomið en lenti á vegg og brann út

„Heimilið þarf ekki alltaf að vera allt tandurhreint og fínt. Ástin til barnsins, við erum ekki með fiðrildi í maganum allan sólarhringinn alltaf og það er eðlilegt. Það er kannski eðlilegt að þeir sem eru í makasambandi geti ekki farið á jafn mörg stefnumót,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur. 

Erfitt fyrir suma að stíga aftur út í samfélagið vegna heilsukvíða

Margir eiga erfitt með að snúa aftur út í samfélagið nú þegar allt virðist á réttri leið eftir kórónuveirufaraldurinn. Sumir fundu fyrir létti þegar takmarkanir voru sem mestar, að sögn sálfræðings, sem segir of mikla varkárni geta valdið kvíða og haft áhrif á andlega heilsu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×