Luke de Jong tryggði Börsungum sigur

Luke de Jong skoraði sigurmarkið
Luke de Jong skoraði sigurmarkið EPA-EFE/Cati Cladera

Barcelona tókst að knýja fram sigur gegn Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 0-1. Luke de Jong skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik. Sigurinn kemur Barcelona upp í fimmta sæti deildarinnar.

Fjöldi leikmanna Barcelona smitaðist af kórónuveirunni í jólafríinu svo liðið mætti ansi vængbrotið til Mallorca eyjar í dag.

Það var ekki mikið um fína drætti í leiknum en leikmenn Barcelona höfðu þó ágætis yfirburði og voru með boltann næstum 70% af leiknum. Illa gekk þó að skapa sér góð færi og það var ekki fyrr en á 44. mínútu sem ísinn var brotinn. Luke de Jong skoraði þá með skalla eftir fína fyrirgjöf frá Oscar Mingueza. 0-1 í hálfleik.

Mallorca sótti ansi mikið í síðari hálfleik án þess að ná að skora og Barcelona fagnaði gríðarlega mikilvægum sigri, 0-1, og eru komnir upp í fimmta sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira