Innlent

„Ég held að við séum á leiðinni út úr þessu hel­vítis Co­vid“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigurður Ingi kallaði hlutina eflaust réttum nöfnum að mati margra, þegar hann talaði um „helvítis Covid“ í Kryddsíldinni á Stöð 2.
Sigurður Ingi kallaði hlutina eflaust réttum nöfnum að mati margra, þegar hann talaði um „helvítis Covid“ í Kryddsíldinni á Stöð 2.

Fulltrúar flokkanna á þingi voru gestir Kryddsíldarinnar á Stöð 2. Í lok þáttar voru þeir beðnir að fara stuttlega yfir árið sem er að líða og vonir sínar fyrir árið 2022, bæði í einkalífinu og stjórnmálunum. Allir voru sammála um að árið 2022 yrði vonandi árið þar sem kórónuveirufaraldurinn yrði kvaddur fyrir fullt og allt.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins reið á vaðið. Hann sagði að gaman hefði verið ef Framsókn hefði fengið 20 prósent í síðustu Alþingiskosningum frekar en 17,3, en sagði að viðlíka árangur hefði kostað meiri vinnu, af hans hálfu og annarra. Þá var hann ekki viss um hvort hann sjálfur og fólkið í kringum hann hefði þolað það.

„Ég hlakka svolítið til framtíðarinnar. Mér finnst þessi ríkisstjórn vera spennandi og markviss, með sóknarfæri í sínum stjórnarsáttmála sem eru uppfull af betri væntingum um betra Ísland. En ef maður lítur til baka, á hvað maður hefði getað gert betur, þá held ég að maður þurfi að vera svolítið persónulegur og segja að maður hefði átt að sinna fjölskyldu og sjálfum sér betur,“ sagði Sigurður Ingi.

Hann sagðist þó hafa yfir litlu að kvarta. Hann á sex barnabörn og von er á því sjöunda í janúar. Að lokum kvaðst hann á komandi ári vilja kveðja faraldurinn sem stjórnað hefur lífum landsmanna frá því snemma á árinu 2020.

„Ég held að við séum á leiðinni út úr þessu helvítis Covid.“

Jól í einangrun veisla miðað við spítalann

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, var fulltrúi síns flokks í Kryddsíldinni í ár þar sem formaðurinn, Bjarni Benediktsson, er í einangrun með Covid-19. Hún ætlar að verja áramótunum heima með eiginmanni sínum og börnum.

„Ég á mín tvö börn og er vissulega ekki að boða það að ég sé ófrísk, en ég væri til í að eiga fleiri börn. Ekki endilega á næsta ári en einhvern tímann.“

Þórdís Kolbrún varði jólunum í einangrun og mætti nánast nýútskrifuð þaðan í Kryddsíldina. Raunar var það ein af ástæðum þess að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sá sér ekki fært að mæta.

„Við vorum í einangrun yfir jól. Ég hef eytt jólunum á Barnaspítalanum, þannig að þetta var nú bara veisla í samanburði við það.“

Þórdís Kolbrún sagði gamlársdag vera góðan dag til að staldra við og hugsa. Hún sagðist meðvituð um forréttindi sín, að fá að starfa við það sem henni þyki skemmtilegast.

Hvað einkalífið varðar sagðist Þórdís Kolbrún vilja treysta vinasamböndin í framtíðinni.

„Vinir mínir, ég sinni þeim ekki nógu vel. Þegar maður er eins og hamstur á hjóli alla daga og passar sig að vera heima þess á milli, þá langar mann ekki að vakna upp þegar maður er orðinn aðeins eldri og allt í einu eru einhverjir vinir manns orðnir veikir og maður hefur misst af einhverjum árum. Það getur verið snúið að keyra slíkt lúxusprógramm, því það er svo mikið skemmtilegt að gerast að maður þarf einhvern veginn að forgangsraða.“

Þá vill hún skilja við Covid-pirringinn á nýju ári, en óhætt er að fullyrða að því geti flestir landsmenn verið sammála.

Bjartari tímar í kortunum

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagðist almennt ekki leggja upp með eftirsjá, heldur horfa fram á veginn. Engu að síður væri ýmislegt sem hægt væri að gera betur eða öðruvísi.

„Þetta ástand nær til okkar allra. Við erum auðvitað öll mennsk. Það er sóttkví hjá börnunum og það er smitgát hjá þessum og þetta er einhvern veginn alltaf til skiptis, þetta púsluspil. Þetta hefur verið erfitt fyrir okkur öll sem búum hérna og heiminn allan. Ég held hins vegar og ætla að vona að þetta sé upphafið að endalokunum,“ sagði Katrín og vísaði þar til þess að margt bendir til þess að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar virðist valda vægari veikindum en fyrri afbrigði.

Hún ítrekaði þó að fólk yrði áfram að fara varlega, þar sem álagið á kerfið mætti ekki verða of mikið ef of margir veiktust í einu. Þá hvatti hún fólk til þess að ganga hægt um gleðinnar dyr í kvöld og gæta að persónubundnum sóttvörnum.

„Ég trúi því að á næsta ári munum við sjá bjartari tíma og að einhverju leyti endurheimta eðlilegt líf.“

Vill elda meira grænt

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagðist telja að stjórnmálafólk væri alltaf að læra, og merkir breytingu í stjórnmálamenningu landsins.

„Mér finnst við vera að læra. Mér finnst fullt af stjórnmálafólki vera einmitt að viðurkenna mistök, þora að líta í eigin barm og þora að viðurkenna að heimurinn er ekki eins og maður hélt að hann væri eða vildi að hann væri.“

Þorgerður viðurkennir sjálf að hana þyrsti í frelsið, hvort sem er í pólitíkinni eða í einkalífinu og vísar þar til þeirra takmarkana sem hafa gilt hér á landi, nánast óslitið frá upphafi faraldursins.

Í persónulegu nótunnum sagðist hún þá vilja læra að elda meira grænkerafæði.

„Það er eitthvað sem ég er að hugsa um að einsetja mér.“

Hundóánægður með árið

Aðspurður sagðist Sigmundur Davíð, formaður Miðflokksins, alls ekki vera ánægður með árið sem senn er liðið.

„Alls ekki. Af mörgum ástæðum. 2021 var ekki nógu gott ár, en núna er ég í tólfta skipti í þessum þætti og það er svolítið svekkjandi að átta sig á því þegar maður er spurður þessarar spurningar að maður er eiginlega enn með sömu væntingar og vonir um nýtt ár: Að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Ég held að ég sé búinn að tala um þetta í tólf ár. Vonandi gengur það eftir á nýju ári.“

Hann sagðist einnig vona að árið yrði betra fyrir íslenskt samfélag, sem og önnur, og vonar að Covid verði á bak og burt á nýju ári.

„En ég vona líka að við losnum við Covid-hugarfarið. Það er að segja að við getum aftur farið að lifa frjálsara lífi og ræða pólitík. Það væri óskastaðan.“

Kallar eftir aðgerðum í loftslagsmálum

„Síðasta ár hefur bara verið eins og það er, allt fullt af óvæntum atburðum og mistökum í mínu persónulega lífi, vissulega. Það er nú kannski það fallega við að vera maður. Við erum breysk, alls konar, gerum mistök og stundum vegnar okkur vel,“ sagði Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.

Á næsta ári ætlar hann að endurskipuleggja garðinn sinn, rækta blóm og gróðursetja tré.

„Og ég vona bara að okkur öllum í stjórnmálunum auðnist að grípa til nógu harkalegra loftslagsaðgerða til þess að þessi tré fái að vaxa í nokkur hundruð ár í viðbót.“

Umræður formannanna í Kryddsíldinni má sjá í efstu klippunni í þessari frétt.


Tengdar fréttir

Það gerist ýmislegt á bak við tjöldin

„Enginn veit neitt og allir eru bara að gera sitt besta.“ Þessi tilvitnun hefur sjaldan átt jafn vel við og á þessum síðustu og verstu. Stundum er bara allt svolítið flókið og erfitt. En það gera allir mistök og það má bara ekki tapa gleðinni.

Ragn­heiður Ósk valin maður ársins 2021

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Margir voru um hituna á viðburðaríku ári en tilkynnt var um valið í þættinum Kryddsíld í dag, þar sem árið 2021 er gert upp.

Unnsteinn Manuel og Hermigervill frumfluttu nýtt lag

Tónlistarmennirnir Unnsteinn Manuel og Hermigervill komu með stemninguna með sér í Kryddsíldina, áramótaþátt Stöðvar 2. Þar frumfluttu þeir nýtt lag, sem ber heitið Eitur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×