Fótbolti

Birkir og Balotelli á skotskónum í Tyrklandi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Birkir Bjarnason í landsleik.
Birkir Bjarnason í landsleik. Getty/Matthew Pearce

Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Adana Demirspor þegar liðið heimsótti Alanyaspor í mikilvægum leik í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Fjögur stig skildu liðin að í sjöunda og tíunda sæti deildarinnar þegar kom að leiknum í kvöld.

Birkir lék á miðju Adana Demirspor sem leiddi með tveimur mörkum gegn einu í leikhléi en Matias Vargas og ítalski glaumgosinn Mario Balotelli voru á skotskónum fyrir gestina í fyrri hálfleik.

Birkir kom gestunum svo í 1-3 snemma í síðari hálfleik með laglegu marki þegar hann lék á tvo varnarmenn Alanyaspor áður en hann skoraði með góðu skoti.

Reyndust það lokatölur leiksins en Birki var skipt af velli á 87.mínútu.

Sigurinn lyfti Adana Demirspor upp í sjöunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×