Lífið samstarf

Mjúkir pakkar eru góðir pakkar

Rúmfatalagerinn
Síðustu forvöð í dag að næla sér í dúnsæng og kodda á tilboði í Rúmfatalagernum.
Síðustu forvöð í dag að næla sér í dúnsæng og kodda á tilboði í Rúmfatalagernum.

Hlýlegasta jólagjöfin gæti leynst í Rúmfatalagernum

„Dúnsængur og koddar eru á frábæru jólatilboði núna hjá okkur í Rúmfatalagernum. Afslátturinn rennur út á miðnætti í kvöld og því síðustu forvöð að næla sér í sæng og kodda á frábæru verði."  Árni Húnfjörð Brynjarsson, verslunarstjóri hjá Rúmfatalagernum segir góða sæng eitt af því mikilvægasta til að ná góðum nætursvefni.

„Þú finnur ekki hlýlegri jólagjöf, dúnsæng er mjúkur pakki í lagi,” segir Árni. „Dúnninn er hlýr, þéttur í sér en mjög léttur, andar vel og hleypir rakanum vel í gegnum sig svo við svitnum minna undir dúnsæng en sæng úr gerviefni. Það myndast ekki hitamolla undir dúnsæng, hitastigið helst jafnt yfir nóttina undir sænginni.”

„Þú finnur ekki hlýlegri jólagjöf, dúnsæng er mjúkur pakki í lagi,” segir Árni Húnfjörð Brynjarsson verslunarstjóri. 

Árni segir auðvelt að týnast í því fjölbreytta úrvali sem Rúmfatalagerinn býður upp á, en starfsfólk verslana geti leiðbeint viðskiptavinum varðandi hvað hentar hverjum og einum best.

„Fólk hefur mismunandi þarfir og það er hlutverk okkar að leiðbeina viðskiptavinum að velja réttu sængina. Við eigum landsins stærsta úrval af dúnsængum og koddum og erum sérfræðingar í svefni. Við leggjum metnað okkar í að ráðleggja og selja viðskiptavinum okkar réttu vöruna til að ná góðum nætursvefni sem er svo mikilvægur. Við erum með mikið úrval af einbreiðum, extra löngum og tvöföldum sængum og allir ættu að geta fundið draumasængina sína sem þeir vilja kúra með alla nóttina.” Árni bendir einnig á nýja leitarvél á heimasíðu Rúmfatalagersins sem auðveldi val á sængum og koddum.

„Mörgum finnst þetta frumskógur af upplýsingum og eiginleikum. Því mælum við með að svara einföldum spurningum til að finna draumasængina þína eða draumakoddann. Inni á heimasíðunni okkar, rumfatalagerinn.is erum við búin að búa til einfalda leit sem hjálpar fólki að velja. Þar getur fólk sett inn í leitina hverju það er að leita eftir, t.d. stærð eða einangrunargetu og þá kemur leitin með þær vörur sem hentar miðað við þær forsendur sem fólk er að leita að, því eins og áður segir þá gerir rétt sæng og koddi gæfumun í góðum svefni,“ segir Árni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×