Inter á toppinn en Napoli missteig sig Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. desember 2021 22:21 Alexis Sanchez skoraði annað mark Inter í kvöld. Marco Luzzani/Getty Images Ítalíumeistarar Inter lyftu sér á topp Serie A með öruggum 4-0 sigri gegn Cagliari í kvöld, en Napoli mistókst að koma sér í annað sæti deildarinnar er liðið tapaði 0-1 gegn Empoli.
Lautaro Martinez kom Inter yfir gegn Cagliari á 29. mínútu eftir stoðsendingu frá Hakan Calhanoglu. Hann fékk svo tækifæri til að tvöfalda forystu heimamanna af vítapunktinum, en lét Alessio Cragno, markvörð Cagliari, verja frá sér. Calhanoglu náði frákastinu en tókst einhvernveginn að skófla boltanum framhjá markinu og staðan því enn 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Alexis Sanchez tvöfaldaði forystu heimamanna á 50. mínútu, áður en Hakan Calhanoglu bætti þriðja marki Inter við stundarfjórðungi síðar. Lautaro Martinez breytti stöðunni í 4-0 þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka og gulltryggði sigur heimamanna. Inter er nú á toppi deildarinnar með 40 stig eftir 17 leiki, einu stigi meira en nágrannar sínir í AC Milan sem sitja í öðru sæti. Cagliari vermir hins vegar næst neðsta sæti deildarinnar með tíu stig. ⏹️ | FINAL WHISTLEInter dominate the game at San Siro! 🔥🔥Great stuff, lads🖤💙Powered by @Moncler#ForzaInter #InterCagliari pic.twitter.com/4g7mqez6bs— Int❄️r 🏆🇮🇹 (@Inter_en) December 12, 2021 Þá fóru leikmenn Napoli illa að ráði sínu er liðið tapaði 0-1 gegn Empoli, en sigur hefði fært þá upp fyrir AC Milan í annað sæti deildarinnar á betri markatölu. Patrick Cutrone skoraði eina mark leiksins þegar hann tryggði Empoli sigurinn á 70. mínútu, en Empoli er nú í sjöunda sæti með 26 stig, tíu stigum á eftir Napoli sem sitja í fjórða sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Sjá meira