Lífið

Stjörnulífið: Píratabrúðkaup, rómantík í París og stefnumót með Tyga

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett/Instagram

„Þakklátur fyrir fjölskylduna og lífið“ segir Jóhann Kristófer sem hélt upp á ársafmæli frumburðarins um helgina.

Jóhann lék hinn myrta í Ófærð 3 sem endaði í gær. Hann byrjaði síðan á föstudag með nýjan mánaðarlegan þátt hjá Útvarpi 101 sem heitir Joey Radio og hægt er að hlusta á hér á Vísi.

Simmi Vill fór á NFL leik í gær og var í einstaklega áhugaverðum félagsskap. Með honum á leiknum var rapparinn Tyga og tók Simmi auðvitað sjálfu.  Ekki amalegt stefnumót. 

Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, fagnaði fimmtugsafmæli sínu um helgina í hópi góðra vina í París. Meðal þeirra sem heiðruðu Pétur og Önnu Sigríði Arnardóttur, eiginkonu hans, voru hjónin Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður mennta- og mannauðsmála Samtaka iðnaðarins.

Magnús Geir birti flottar myndir á Instagram-síðu sinni þar sem sjá má meðal annars afmælisbarnið Pétur með gjallarhorn með jólaseríu utan á jakkafötunum. Greinilega mikið stuð.

Af myndunum má sjá að Þóra Margrét Baldvinsdóttir var á svæðinu en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvort Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi verið með í för. Stemmningin var greinilega mikil og var dansað uppi á stólum.

Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Flugmálayfirvöld búa sig undir að eldgos í Grímsvötnum geti valdið verulegum truflunum á flugumferð, bæði hérlendis og inn í Evrópu. Eldstöðin er komin á appelsínugula viðvörun gagnvart alþjóðaflugi, sem táknar vaxandi líkur á gosi. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.elgFilippusdóttir heiðruðu vini sína með nærveru sinni og birti Gísli Örn þessa mynd á Instagram frá París.

„Þetta var stórkostlegt kvöld,“ segir Gísli með myndinni sem hann birti á Instagram.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir birti krúttlega mynd af sér með nýja kærastanum í vikunni. Sá heppni heitir Haukur og er kokkur og einn eiganda Yuzu veitingastaðanna.

Dansarinn Ástrós Trausta er byrjuð að búa með Adami kærastanum sínum. 

Katrín Jakobsdóttir jólaskreytti svalirnar hjá sér um helgina, sú síðasta í stigaganginum.

Bubbi Morthens minnstist Rúna Júl í gær. Tónlistarmaðurinn lést þann 5. desember árið 2008.

Annie Mist passar vel upp á sig og er dugleg að segja frá æfingum sínum á Instgram.

Víkingur Ólafsson spilaði á klukkutíma tónleikum í Hörpu um helgina fyrir fjölskyldu og vini. Spilaði hann eingöngu tónlist eftir föður sinn, arkitektinn Ólaf Óskar Axelsson, sem fagnaði sjötugsafmælinu um  helgina. 

Emmsjé Gauti telur niður í jólatónleikana sína. Um helgina var tilkynnt að þeir munu einnig fara fram í streymi. 

„Það komu tár þegar ég sá son minn renna sér á snjóbretti,“ viðurkenndi Binni Love á Instagram. Stormur sonur hans renndi sér í fyrsta sinn á snjóbretti um helgina. 

Sara Oskarsson, listakona og varaþingmaður Pírata, gekk í það heilaga um helgina. 

Halldóra Mogensen var á meðal gesta og birti nokkrar myndir úr brúðkaupinu. Á Instagram síðunni hennar má einnig sjá myndband af brúðinni dansa með Helgu Brögu.

Sara Sigmunds nýtur lífsins í Abu Dhabi og skellti sér á brimbretti um helgina. 

Áhrifavaldurinn Nökkvi Fjalar er þakklátur. Hann er nýlega fluttur til London.

Birgitta Líf hélt upp á níræðisafmæli afa síns Boða Björns um helgina ásamt fjölskyldunni.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Arna Dögg Einarsdóttir eiginkona hans héldu upp á tuttugu ára brúðkaupsafmæli á dögunum. Hann birti krúttlega mynd af þeim frá Mexíkó, tuttugu árum eftir að þau fóru þangað í brúðkaupsferð.

Eins og kom fram á Vísi um helgina komst Birkir Blær í úrslit í sænska Idolinu.

„Það var ekki einu sinni smá smuga í hausnum á mér að ég gæti mögulega unnið keppnina. Ég bjóst alltaf við því að fara heim, ég bjóst ekki við því að komast inn í keppnina til að byrja með,“ sagði Birkir í samtali við Lífið um helgina. 

Gaukur Úlfarsson birti mynd af sér með Nadyu stofnanda Pussy Riot. 

Emil í Kattholti var frumsýnt um helgina í Borgarleikhúsinu. Sýningin fékk ótrúlega góðar viðtökur og var mikið hlegið í salnum, enda stórkostleg sýning. Hlynur Atli Harðarson og Sóley Rún Arnarsdóttir fóru með hlutverk Emils og Ídu á fyrstu sýningunni og slógu algjörlega í gegn, ótrúlegar stjörnur bæði tvö. 

Eivør hélt fallega jólatónleika í Reykjavík í gær. 

Sunneva Einars birti skvísumyndir sem teknar voru á The Londoner hótelinu.

Sólborg birti mynd af sér ásamt leikhópnum í Leikfélagi Keflavíkur.

Söngkonan Birgitta Haukdal gaf út jólalag um helgina, Ég man svo vel um jólin. 

Búið er að selja upp á yfir tuttugu sýningar af barnaleikritinu hennar Lára og Ljónsi sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Um er að ræða yndislega barnasýningu sem hentar einstaklega vel fyrir yngstu leikhúsgestina. Kjartan Darri fer þar á kostum sem sex ára vinur Láru sem leikin er af Þórey Birgisdóttur. Bjarni Kristbjörnsson fer með hlutverk bangsans Ljónsa. Leikstjóri sýningarinnar er Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói. 

Gummi Kíró og Lína Birgitta njóta lífsins í París. Parið er einstaklega duglegt að ferðast og skoða heiminn saman en þau eiga tveggja ára sambandsafmæli um þessar mundir. 

Selma Björns, Friðrik Ómar, Ragnheiður Gröndal og Jógvan héltu nokkra vel heppnaða jólatónleika í Salnum í Kópavogi um helgina. 

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum nældi sér í vel verðskuldaðan Evrópumeistaratitil um helgina. Kolbrún Þöll fór algjörlega á kostum á mótinu. 

Ásta Kristinsdóttir var ótrúlega stolt af því að vera valin í All star lið mótsins. 

Hér fyrir neðan má sjá dansatriði hópsins en þær fengu hæstu einkunnina sem gefin var fyrir dans á mótinu.

Hljómsveitin VÖK er komin á flakk eftir tveggja ára pásu vegna heimsfaraldursins. VÖK spilaði í Torronto í Kanada um helgina.

Nanna Bryndís í Of Monsters and Men er mætt í upptökuverið. 

Eiður Smári birti mynd af sér með Jökli í Kaleo um helgina. Í þetta skiptið hélt Eiður Smári á gítarnum og sagðist geta spilað endalaust með strákunum í Kaleo.

Útvarpskonan Þórdís Valsdóttir er líka í París þessa stundina ásamt kærastanum.

Unnur Eggertsdóttir birti fallegar bumbumyndir á Instagram en hún á von á sínu fyrsta barni í mars á næsta ári.

Tónlistarkonurnar Þórunn Antonía og Hildur fóru saman í upptökuver um helgina og tóku upp nýtt lag saman.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×