Innlent

Telur ólíklegt að boðaðar aðgerðir skili miklum árangri

Eiður Þór Árnason skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af stöðunni.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af stöðunni. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ólíklegt að boðaðar sóttvarnaaðgerðir muni skila miklum árangri. Þetta má lesa úr minnisblaði hans til heilbrigðisráðherra þar sem hann leggur fram þrjár tillögur að takmörkunum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag að 500 manna fjöldatakmörkun tæki gildi frá og með næsta miðvikudegi og 1.500 leyft að koma saman á viðburðum gegn framvísun hraðprófs.

Opnunartími veitinga- og skemmtistaða verður jafnframt styttur um tvo klukkutímatíma og gert að loka klukkan ellefu. Þá tekur grímuskylda gildi nú á miðnætti þar sem ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægð og á sitjandi viðburðum.

Takmarkanirnar eru sambærilegar þeim sem tóku gildi þann 15. september síðastliðinn og giltu til 20. október. Þá voru fjöldamörk sömuleiðis miðuð við 500 manns en 1.500 á viðburðum, eins metra nándarmörk almennt í gildi en vínveitingastaðir opnir til miðnættis. Grímuskylda var einkum til staðar í almenningssamgöngum og starfsemi sem krafðist mikillar nándar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagðist hafa farið bil beggja þegar hún tók ákvörðun byggða á tillögum sóttvarnalæknis.Vísir/Vilhelm

Í minnisblaði sínu tekur Þórólfur saman áhrif þeirra ólíku takmarkana sem hafa verið í gildi frá því í seinni hluta júlí og segir að á gildistíma umræddar reglugerðar hafi daglegur fjöldi tilfella aukist úr um 20 í rúmlega 60. Á sama tíma hafi daglegur fjöldi inniliggjandi sjúklinga farið úr sex, þar af tveir á gjörgæsludeild, í átta með engan á gjörgæsludeild.

Telur sóttvarnalæknir ólíklegt að þessar aðgerðir muni skila miklum árangri eins og staðan er núna. „Jafnvel má færa fyrir því rök að smitum muni halda áfram að fjölga ef þeim verður beitt,“ skrifar Þórólfur.

160 farið á sjúkrahús

Í yfirstandandi bylgju faraldurins sem hófst um miðjan júlímánuð 2021 hafa tæplega 7.300 einstaklingar greinst með Covid-19, um 160 lagst inn á sjúkrahús, eða 2,2%, 33 lagst inn á gjörgæsludeild, 17 þurft á aðstoð öndunarvélar að halda, einn þurft að fara í hjarta- og lungnavél og fjórir látist.

Um 60% þeirra sem greindust voru full bólusettir og um 50% þeirra sem lögðust inn á sjúkrahús og þurftu á gjörgæsluinnlögn að halda voru full bólusettir. Þórólfur segir hins vegar ljóst að áhætta á smiti hjá óbólusettum sé þreföld miðað við bólusetta, áhætta á innlögn vegna Covid-19 er fimmföld og áhætta á gjörgæsluinnlögn sexföld.

„Af framangreindu er ljóst að afléttingar undanfarinna vikna hafa leitt til hraðrar útbreiðslu COVID-19 hér á landi með þeim afleiðingum að mikill fjöldi hefur veikst alvarlega og þurft á spítalainnlögn að halda. Þetta hefur gerst þrátt fyrir útbreidda bólusetningu gegn COVID-19. 

Þó að spítalakerfið á Íslandi sé ekki komið á neyðarstig á þessari stundu má telja sterkar líkur á að ef ekki verður brugðist við með takmörkunum innanlands þá mun ekki líða langur tími þar til að neyðarástand skapast í heilbrigðiskerfi landsins (sérstaklega spítalakerfinu) með ófyrirséðum afleiðingum. Bent skal á að innlögnum fjölgaði mun hraðar í 4. bylgju þar sem delta-afbrigðið var ráðandi heldur en í fyrri bylgjum.“

Tengd skjöl


Tengdar fréttir

Fimm hundruð manna samkomubann og grímuskylda

Fimm hundruð manna fjöldatakmörkun tekur gildi næsta miðvikudag. Þá verður grímuskylda tekin upp á morgun þar sem ekki er hægt að virða eins metra nálægðarreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×