Íslenskri hönnun varpað á skjái um allt höfuðborgarsvæðið Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. október 2021 16:31 Eyjólfur Pálsson, gjarnan kenndur við Epal, stendur að baki átakinu. Aðsent Í október fer í fyrsta sinn af stað einstakt átak sem ætlað er að vekja áhuga á íslenskri hönnun. 60 ólíkar hönnunarvörur, frá ferðavögnum yfir í flothettur og allt þar á milli, munu prýða ljósaskilti um allt höfuðborgarsvæðið þessa vikuna og sýna fjölbreytileika og fegurð íslenskrar hönnunar „
Átakinu er ætlað að gera fjölbreytileika íslenskrar hönnunar sýnilegan með auglýsingum á umhverfismiðlum um allt höfuðborgarsvæðið. Við munum birta slíkar auglýsingar á mínútu fresti í heila viku, 17. til 23. október,“ segir Eyjólfur Pálsson, gjarnan kenndur við Epal, sem stendur að baki átakinu. „Íslensk hönnun fær ekki alltaf þá athygli og virðingu sem hún verðskuldar og hef ég í gegnum tíðina reynt ýmsar leiðir til að koma henni betur á framfæri. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að við öll, sem seljum, hönnum, framleiðum eða einfaldlega elskum íslenska hönnun, tökum höndum saman til að styðja við þessa mikilvægu iðngrein,“ segir Eyjólfur. 60 íslenskir hönnunargripir Ástríða Eyjólfs fyrir hönnun nær langt út fyrir hans eigin rekstur og var honum sérlega umhugað að um samvinnuverkefni væri að ræða sem endurspegli breidd íslenskrar hönnunar og fékk því Miðstöð hönnunar og arkitektúrs til liðs við sig og óskaði eftir að hún leggði til hugmyndir um fjölbreytta og fallega íslenska hönnun sem er nú þegar í sölu eða notkun. „Úr varð ótrúlega fjölbreyttur flokkur hönnunargripa, um 60 talsins, sem varpað verður upp á skjái um allt höfuðborgarsvæðið. Hlutirnir á skiltunum munu spanna allt frá flothettum og fötum yfir í gistivagna, húsgögn og tölvuleiki,“ segir Eyjólfur og segir undirtektirnar hafa verið mjög góðar, enda ljóst að allir sem standa að eða unna íslenskri hönnun njóta góðs af því að virðing sé efld fyrir henni. Brýn þörf á innkaupastefnu Eyjólfur bendir á að sýnileiki skipti máli, og ekki bara á ljósaskiltum. „Frændur okkar, Danir, leggja til dæmis ávallt áherslu á eigin framleiðslu og hönnun í stofnunum, byggingum, opinberum verkefnum og öllu kynningarefni, eins og í bíómyndum. Þetta gera Danir á hreinum viðskiptalegum forsendum en hönnun er einn helsti drifkrafturinn að baki aukinni verðmætasköpun, meiri lífsgæðum, sjálfbærni og betra þjóðfélagi. Opinberar byggingar eru stolt þjóðar og eiga að endurspegla þann faglega metnað sem við búum yfir, bæði hvað varðar listmuni og arkitektúr en ekki síður hönnunarvörur,“ segir Eyjólfur og bendir á að brýn þörf sé á innkaupastefnu gagnvart íslenskri hönnun og framleiðslu.
Tíska og hönnun Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Hún er komin til að vera“ Tónlist Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Fleiri fréttir Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira