Torres skaut Spánverjum í úrslit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ferran Torres fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Ferran Torres fagnar öðru marka sinna í kvöld. David S. Bustamante/Getty Images

Ferran Torres skoraði tvívegis er Spánn tryggði sér sæti í úrslitum Þjóðadeildarinnar með 2-1 sigri á Evrópumeisturum Ítalíu er liðin mættust á San Siro-vellinum í Mílanó-borg í kvöld.

Torres skoraði tvívegis í fyrri hálfleik áður en hann þurfti að fara meiddur af velli snemma í síðari hálfleik. Mikel Oyarzabal lagði upp bæði mörkin og voru Spánverjar 2-0 yfir í hálfleik.

Til að bæta gráu ofan á svart fékk Leonardo Bonucci, miðvörður Ítalíu, tvö gul spjöld á 12 mínútna kafla í fyrri hálfleik og Evrópumeistararnir því manni færri í tæpar 50 mínútur í kvöld.

Spánverjar héldu í boltann á löngum köflum í síðari hálfleik og reyndu að drepa leikinn eftir bestu getu. Það gekk þó ekki alveg þar sem Lorenzo Pellegrini minnkaði muninn á 83. mínútu eftir sendingu Federico Chiesa.

Staðan þar með orðin 2-1 en nær komust Ítalir ekki og Spánverjar mættir í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar þar sem þeir mæta annað hvort Frökkum eða Belgum. Sá leikur fer fram á morgun og verður einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira