Menning

Út­varps­maðurinn Guðni Már Hennings­son er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Guðni Már Henningsson fluttist til spænsku eyjarinnar Tenerife árið 2018 eftir að hann hætti á RÚV.
Guðni Már Henningsson fluttist til spænsku eyjarinnar Tenerife árið 2018 eftir að hann hætti á RÚV. Anton Brink

Guðni Már Henningsson útvarpsmaður er látinn, 69 ára að aldri. Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2 og samstarfsmaður Guðna Más til margra ára, greindi frá láti hans í Popplandi á Rás 2 í hádeginu.

Ólafur Páll rifjaði upp Guðni Már hafi verið fyrsti samstarfsmaður Ólafs Páls í Popplandi á Rás 2, en Guðni Már hóf fyrst störf á Rás 2 árið 1994. 

„Við vorum miklir vinir og unnum lengi og vel saman hérna í Popplandi. Hann var lengi liðsmaður Popplands. Hann var líka á næturvaktinni og einn elskaðasti og dáðasti útvarpsmaður þjóðarinnar.“

Ólafur Páll sagði fáa útvarpsmenn hafa öðlast vinsældir eins og Guðni. 

„Hann var Reykvíkingur, hann var Víkingur, hélt mikið með Víkingi. Hann var búinn að búa á Spáni, á Tenerife, í nokkur ár eftir að hann hætti að vinna hjá okkur hérna á Rás 2. Hann var ótrúlega skemmtilegur, hann var óskaplegur músíkmaður. Það eru fáir sem ég þekki sem hlustuðu eins mikið á músík og hann eftir að hafa verið hérna í vinnunni í útvarpinu allan daginn þá fór hann heim og setti plötu á fóninn,“ sagði Ólafur Páll.

Ólafur Páll segir Guðna Pál hafa haft sinn einstaka smekk á tónlist. Hann hafði áhrif á mig og minn smekk. Til marks um það hvernig hann var og bjargaði sér þegar hann hætti að vinna hér hjá okkur þá fór hann að mála myndir, selja þær og hafði ágætt upp úr því. […] Honum var margt til lista lagt. Hann skrifaði ljóð, í félagi við aðra bjó hann til músík. Hann skrifaði og gaf út bækur.“

„Hann var skemmtilegur og mér þótti mjög vænt um hann Guðna minn. Og ég segi bara góða ferð, kæri vinur,“ sagði Ólafur Páll í Popplandi í hádeginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×