Ó­vænt tap Real í Kata­lóníu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessi mynd lýsir deginum ágætlega hjá Real Madríd.
Þessi mynd lýsir deginum ágætlega hjá Real Madríd. David Ramos/Getty Images

Real Madríd tókst ekki að slíta sig frá nágrönnum sínum í Atlético á toppi La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, er liðið heimsótti Espanyol í Katalóníu. Fór það svo að heimamenn unnu óvæntan 2-1 sigur.

Real hafði farið vel af stað á tímabilinu meðan Espanyol hafði aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum sínum. Var búist við því að Karim Benzema og félagar myndu næla í nokkuð þægileg þrjú stig en allt kom fyrir ekki.

Raul de Tomas kom heimamönnum yfir á 17. mínútu leiksins og var það eina mark fyrri hálfleiks. Aleix Vidal tvöfaldaði forystu heimamanna með marki þegar klukkustund var liðin og gestirnir í tómu tjóni.

Benzema minnkaði muninn þegar 19 mínútur lifðu leiks en það dugði ekki til, annan leikinn í röð tapaði Real 2-1 en fyrr í vikunni töpuðu lærisveinar Carlo Ancelotti óvænt gegn Sheriff Tiraspol í Meistaradeild Evrópu.

Real og Spánarmeistarar Atlético eru sem stendur jöfn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig að loknum átta umferðum. Real Sociedad er með 16 stig í 3. sæti og á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira