Umfjöllun: Ís­land - Norður-Makedónía 2-2 | Vöknuðu til lífsins og redduðu stigi

Ingvi Þór Sæmundsson og Sindri Sverrisson skrifa
Íslenska liðið fagnar jöfnumarki Andra Lucasar Guðjohnsen.
Íslenska liðið fagnar jöfnumarki Andra Lucasar Guðjohnsen. vísir/hulda margrét

Hinn 19 ára Andri Lucas Guðjohnsen skoraði nánast úr sinni fyrstu snertingu þegar hann tryggði Íslandi eitt stig gegn Norður-Makedóníu í undankeppni HM í fótbolta í kvöld. Íslenska liðið átti skelfilegan dag langt fram í seinni hálfleik en frábær lokakafli dugði til 2-2 jafnteflis.

Ísland er því með fjögur stig eftir fyrri helming undankeppninnar, eða fimm leiki, og ekkert útlit fyrir að liðið sé á leið til Katar á næsta ári. Liðið mætir næst Þýskalandi á miðvikudagskvöld.

Gestirnir voru 2-0 yfir þegar korter var til leiksloka en líflegir varamenn frískuðu upp á leik íslenska liðsins auk þess sem Albert Guðmundsson fór úr öðrum í fimmta gír eftir að hafa verið færður inn af kantinum. Aukaspyrna hans skapaði fyrra mark Íslands en Brynjar Ingi Bjarnason, sem átti góðan leik, fylgdi á eftir skotinu og skoraði af stuttu færi.

Andri Lucas jafnaði svo metin á 84. mínútu, rétt eftir að hafa komið inn á sem varamaður, eftir undirbúning Alberts og Jóns Dags Þorsteinssonar og varð þar með þriðji ættliður Guðjohnsen-ættarinnar til að skora í A-landsleik.

Óboðlegt vel fram í seinni hálfleik

Það er hægt að horfa jákvæðum augum á lokakaflann og það hvernig íslenska liðinu tókst að klóra sig upp úr djúpri gröf. Stig á heimavelli gegn Norður-Makedóníu, liði sem var í D-deild síðustu Þjóðadeildar og ætti að vera næstlakasti mótherji Íslands í keppninni, á eftir Liechtenstein, er hins vegar lítið til að fagna. Stærstur hluti leiksins var sem hreinasta martröð af hálfu íslenska liðsins og versta frammistaða, að minnsta kosti í leik í undankeppni stórmóts, í háa herrans tíð.

Birkir Bjarnason í baráttunni í sínum hundraðasta leik.Vísir/Hulda Margrét

Nafnarnir Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson geta alla vega rifjað upp marga tugi leikja með betri minningum en frá þeim hundraðasta sem þeir spiluðu báðir í dag. Arnar Þór Viðarsson gerði þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá tapinu gegn Rúmeníu og setti til að mynda Guðlaug Victor Pálsson á bekkinn og gaf Ísaki Bergmann Jóhannessyni fyrsta leik í byrjunarliði í undankeppni.

Reynslulítil miðjan, með hina ungu Ísak og Andra Fannar Baldursson, ásamt reyndar Birki Bjarnasyni, varð undir gegn gestunum í fyrri hálfleiknum. Eftir stórsókn á fyrstu mínútu náði Ísland ekki að byggja upp eina einustu sókn fram í miðjan seinni hálfleik. Vörnin skilaði boltanum illa frá sér, sóknarlínan var týnd, og Norður-Makedóníumenn áttu ekki í neinum vandræðum með að loka á allar tilraunir íslenska liðsins til að sækja fram á við.

Það var einnig óöryggi í varnarleiknum, ekki síst í föstum leikatriðum og eftir tvær hættulegar hornspyrnur gestanna í röð skoruðu þeir með skalla Darko Velkovski af nærstöng. Hann stakk sér fram fyrir Viðar Örn Kjartansson en Rúnar Alex Rúnarsson hefði sennilega getað gert betur í markinu.

Jón Dagur Þorsteinsson frískaði verulega upp á leik íslenska liðsins ásamt fleiri varamönnum.vísir/hulda margrét

Gestirnir komust tvívegis í fína stöðu í fyrri hálfleiknum til að skora en náðu ekki að nýta sér það. Snemma í seinni hálfleik kom svo seinna mark þeirra, eftir slæma sendingu Guðmundar Þórarinsson á milli kanta, þegar Ezgjan Alioski skoraði án þess að þurfa að setja mikinn kraft í skotið.

Sluppu með skrekkinn

Við svo búið gerði Arnar Þór Viðarsson þrefalda skiptingu til að hleypa lífi í leik íslenska liðsins, og það heppnaðist. Mikill hraði og fjör var í leiknum síðustu tuttugu mínúturnar en það var þó ekki þannig að Ísland næði fullum tökum á honum og verðskuldaði fyllilega að jafna metin.

Norður-Makedónía átti til að mynda bæði stangarskot og skalla sem var á leið í markið þegar Brynjar Ingi stökk til bjargar og náði að skalla frá af marklínu. Leikurinn var gjörsamlega galopinn á lokamínútunum og Ísland hefði sömuleiðis getað skorað sigurmark þó að lítil innistæða væri fyrir því.

Með frammistöðu eins og í dag verður íslenska liðið kaffært af Þjóðverjum á miðvikudaginn en síðasta korterið í leiknum gefur von um að þetta mikið endurnýjaða lið berjist af lífs og sálar kröftum fyrir stigum þar og óvænt líf kvikni í HM-draumnum.


Tengdar fréttir

Leikmenn kallaðir nauðgarar á göngu fyrir leik

Arnar Þór Viðarsson segir að leikmenn íslenska landsliðsins hafi verið kallaðir „nauðgarar“ á gönguferð sinni í morgun í aðdraganda leiksins við Norður-Makedóníu. Slíkt sé erfitt að þola fyrir unga leikmenn og hafi haft áhrif á spennustig þeirra í leiknum.

„Ég er bara ótrúlega stoltur“

Birkir Bjarnason spilaði sinn hundraðasta landsleik fyrir Ísland er liðið gerði 2-2 jafntefli við Norður-Makedóníu í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í dag. Hann var sáttari við áfangann en spilamennsku íslenska liðsins.

„Þetta var íslenskur karakter, eitthvað sem við höfum alltaf haft“

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, ræddi við RÚV að loknu 2-2 jafntefli Íslands og Norður-Makedóníu í undankeppni HM sem fram fer í Katar um jólin 2022. Hann tekur á sig slaka byrjun Íslands og hrósaði ungu strákunum sem komu inn af bekknum og breyttu leiknum.

Einkunnir Íslands: Brynjar Ingi stóð upp úr

Íslenska karlalandsliðið gerði 2-2 jafntefli við Norður-Makedóníu í J-riðli undankeppni HM 2022 í kvöld. Brynjar Ingi Bjarnason stóð upp úr í íslenska liðinu að mati Vísis.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira