Bíó og sjónvarp

„Þú drullaðir yfir mig fyrir framan alla“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Æði 3 fer af stað í næstu viku og fá áhorfendur smá innsýn í líf þeirra Bassa, Patta og Binna síðustu mánuði.
Æði 3 fer af stað í næstu viku og fá áhorfendur smá innsýn í líf þeirra Bassa, Patta og Binna síðustu mánuði. Stöð 2

Þriðja þáttaröðin af Æði fer í sýningu á Stöð 2 og Stöð 2+ þann 9. september næstkomandi. Patrekur Jaime Binni Glee og Bassi Maraj fara á kostum í þessum raunveruleikaþáttum og bíða margir spenntir eftir frumsýningunni.

Í nýrri kitlu fyrir Æði 3 má sjá að það verður nóg um drama eins og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.  Patti, Bassi og Binni eru mættir aftur til leiks og hefur frægðarsól þeirra aldrei skinið jafn skært. Leikstjóri þáttanna er eins og áður Jóhann Kristófer Stefánsson. 

Í þriðju seríu af Æði halda þremenningarnir uppi viðteknum hætti þótt margt hafi breyst frá því við sáum þá síðast. Fjölskyldan og heimilið spilar stærri sess í lífi Patta og hann reynir að átta sig á hver hans næstu skref ættu vera í lífinu. Bassi er orðinn frægur rappari og setur tónlistina í fyrsta sætið, en frægðin hefur tekið sinn toll. Binni Glee er enn ketó og gerir aðra atlögu að því að flytja til Reykjavíkur en það reynist honum mikil áskorun. 

Lífið er kannski ekki alltaf dans á rósum en hjá þessum vinum er lífið alltaf Æði. Brot úr nýju þáttaröðinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Fyrsta stiklan fyrir Æði 3

Tengdar fréttir

Bassi Mara­j gefur út lag Hin­segin daga 2021

Raunveruleikaþáttastjarnan og tónlistarmaðurinn Bassi Maraj gaf út lagið PRIDE í dag og er um að ræða lag Hinsegin daga í ár. Hinsegin dagar fara fram dagana 3.-8. ágúst og standa fyrir hinni vinsælu Gleðigöngu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×