Í öðru sæti kemur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra með 2,12 milljónir á mánuði og svo Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, með 2,07 milljónir króna.
Næst koma Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Hart deilt um laun þingmanna og ráðherra
Mikil umræða hefur skapast um tekjur ráðamanna á síðustu árum og hart deilt um launahækkanir þeirra. Í júlí hækkuðu laun þingmanna, ráðherra og forseta Íslands um 6,2 prósent en laun þingmanna hafa hækkað um 16,7 prósent frá árinu 2016. Það sama ár hækkaði kjararáð þingfararkaup um 44,3 prósent á einu bretti.
Í júlí fór þingfararkaup úr 1.210.368 krónum í 1.285.411 krónur en ofan á það leggjast gjarnan laun fyrir nefndarstörf, þingflokksformennsku og flokksformennsku. Laun forseta Íslands eru nú 3.484.357 krónur, en voru 3.280.939 krónur. Laun forsætisráðherra eru nú 2.360.053 krónur, en voru 2.222.272 krónur
Laun annarra ráðherra eru nú 2.131.788 krónur, en voru 2.007.333 krónur.
Í lögum um þingfararkaup og lögum um Stjórnarráð Íslands er meðal annars kveðið á um að laun þingmanna, ráðherra og forseta skuli taka breytingum einu sinni á ári og þá í samræmi við þróun reglulegra launa hjá hinu opinbera. Það fyrirkomlag kom í stað kjararáðs sem var lagt niður eftir hækkunina árið 2016.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2020 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2019 sem var greiddur árið 2020.
Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.
Tekjuhæstu stjórnmálamenn landsins í tekjublaði Frjálsrar verslunar
- Guðni Thorlacius Jóhannesson, forseti Íslands - 2.801 þúsund
- Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra - 2.124 þúsund
- Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra - 2.073 þúsund
- Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra - 2.044 þúsund
- Steingrímur J Sigfússon, forseti Alþingis - 1.880 þúsund
- Haraldur Benediktsson, alþingismaður - 1.866 þúsund
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra - 1.862 þúsund
- Logi Már Einarsson, alþingismaður - 1.855 þúsund
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarm.ráðh. - 1.840 þúsund
- Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, ferðam-,iðn.- og nýsk.ráðh. - 1.829 þúsund