Fótbolti

Enginn sem heldur oftar hreinu en Pickford

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jordan Pickford hefur ekki enn fengið á sig mark á þessu Evrópumóti.
Jordan Pickford hefur ekki enn fengið á sig mark á þessu Evrópumóti. EPA-EFE/Justin Tallis / POOL

Jordan Pickford hefur oft verið gagnrýndur fyrir framistöðu sína á vellinum á seinustu árum. Hvað sem fólki finnst um hann þá er það nú orðið ljóst að sama hvað gerist í seinustu tveim leikjum EM þá er hann sá markmaður sem hélt markinu oftast hreinu að móti loknu.

Þessi 27 ára markmaður Everton hefur haldið hreinu í öllum fimm leikjum Englands á mótinu til þessa. 

Gianluigi Donnarumma, markvörður ítalska liðsins, var sá eini sem gat náð honum í keppninni um hver heldur oftast hreinu. 

Donnarumma fékk hinsvegar á sig mark gegn Spánverjum fyrr í kvöld og hann getur því mest haldið hreinu fjórum sinnum á þessu móti, það er, ef hann heldur hreinu í úrslitaleiknum á sunnudaginn.

Pickford og félagar mæta Dönum í seinni undanúrlsitaleik mótsins annað kvöld klukkan 19:00, og verður leikurinn sýndur á Stöð 2 EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×