Fótbolti

Hrífst ekki með á Englands-lestina: „Í fyrsta gír“

Valur Páll Eiríksson skrifar
thumbs-1625350763676-00007-c375k

England komst í kvöld í undanúrslit Evrópumóts karla í fótbolta í fyrsta skipti frá árinu 1996 eftir 4-0 stórsigur á Úkraínu. Margur hefur heillast af enska liðinu en Ólafur Kristjánsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sport, er ekki eins hrifinn.

England var með tögl og hagldir frá upphafi til enda í leik kvöldsins og gerðu út um leikinn með þremur mörkum snemma í síðari hálfleik eftir að hafa leitt 1-0 í hléi. Ólafur segir skort á hraða í enska liðinu sem gæti kostað þá á næstu stigum mótsins.

„Maður veltir fyrir sér hvernig leikmyndin hefði orðið hefðu þeir ekki skorað þetta mark snemma, miðað við tempóið sem þeir voru í í fyrri hálfleik. Kannski var tempóið svoleiðis af því að þeir voru komnir með þetta mark. Hvað kemur fyrst eggið eða hænan?“ 

„Í fyrri hálfleik var ekkert tempó hjá þeim og ég kom hérna með böggum hildar yfir þessu. En þeir fóru úr hlutlausum í fyrsta gír, eða kannski úr fyrsta í annan gír í seinni hálfleik, og skora aftur þar mark snemma, þá er þetta aftur orðið þægilegt.“

„Ég er ekki sammála því að enska liðið líti vel út. Þeir fá frábær úrslit, en þegar ég kíki á þau fjögur lið sem eru eftir; Danmörk, Spán, Ítalíu, það er tempó í öllum þessum liðum, það er ekki í enska liðinu,“

„Ég sakna þess í enska liðinu, Southgate og þeim er frjálst að velja sinn leikstíl en við erum að tala um England, við erum að tala um lið sem ætlar að vera stórveldi og vinna. Mér finnst þetta vera svolítið eins og Portúgal 2016 og Frakkland 2018; byrjum á að passa að tapa ekki og sjáum svo hvað gerist.“

England mætir Danmörku í undanúrslitum á Wembley á miðvikudagskvöldið klukkan 19:00. Sá leikur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 EM.

Ræðu Ólafs um enska liðið má sjá í heild sinni að neðan.

Klippa: Óli um enska liðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×