Fótbolti

Tími fyrir Englendinga að sýna að þeir hafi lært eitthvað af skellinum á móti Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ensku landsliðsmennirnir fagna hér fyrirliðanum Harry Kane eftir að hann skoraði sitt fyrsta mark á EM og innsiglaði um leið sigurinn á Þjóðverjum í sextán liða úrslitunum.
Ensku landsliðsmennirnir fagna hér fyrirliðanum Harry Kane eftir að hann skoraði sitt fyrsta mark á EM og innsiglaði um leið sigurinn á Þjóðverjum í sextán liða úrslitunum. AP/Andy Rain,

Átta liða úrslitin á Evrópumótinu í knattspyrnu klárast í dag með leik Englendinga og Úkraínumanna og þessi leikur er að flestra mati leikur á milli Davíðs og Golíats.

Er vanmat kannski meira áhyggjuefni fyrir enska landsliðið á EM í kvöld en sjálfir mótherjarnir í úkraínska landsliðinu? Það búast allir við enskum sigri en fyrir fimm árum síðan var kannski svipað upp á teningnum í Nice. Það reyndist vera síðasti leikur Englendinga á EM og hápunktur íslenska ævintýrsins í Frakklandi.

Englendingar fögnuðu gríðarlega þegar þeim tókst loksins að yfirbuga þýsku grýluna á stórmóti og slá Þjóðverja út í sextán liða úrslitum Evrópumótsins. Margt hjá enska liðinu er farið að minna á heimsmeistaraliðið frá 1966. 55 árum síðar gæti liðið líka endurtekið leikið með því að vinna úrslitaleik á Wembley.

Enska landsliðið hefur enn ekki fengið á sig mark á Evrópumótinu í knattspyrnu en liðið hefur heldur ekki spilað á útivelli. Eftir fjóra tandurhreina leiki á Wembley eru þeir ensku komnir til Rómar þar sem þeir mæta Úkraínu í átta liða úrslitum í dag.

Það er samt hættulegt að horfa of langt. Úkraína er sýnd veiði en ekki gefin. Liðið rétt skreið vissulega áfram í sextán liða úrslitin en er komið lengra en bæði liðin fyrir ofan sig í riðlinum, Holland og Austurríki, sem duttu út í sextán liða úrslitum. Úkraína fór einnig taplaus í gegnum undankeppnina og endaði þar þremur stigum ofar en Evrópumeistarar Portúgals.

Englendingar horfa nefnilega flestir lengra í undanúrslitin og úrslitaleikinn sem fara báðir fram á Wembley. Fyrst þarf hinsvegar að slá út skeinuhætt lið Andriy Shevchenko. Það er væntanlega enginn búinn að gleyma því sem gerðist á móti Íslandi á síðasta Evrópumóti. Líkt og gegn Íslendingum þá eru þeir ensku að mæta liði sem hefur aldrei komist svona langt áður á Evrópumótinu.

2-1 tap Englendinga á móti Íslandi í Nice er eitt vandræðalegasta mómentið í sögu landsliðsins. Liðið svaraði því með því að komast í undanúrslit á HM í Rússlandi fyrir þremur árum. Nú vilja menn meira.

Sú staðreynd að enska landsliðið hefur ekki fengið á sig mark í 360 mínútur á þessu Evrópumóti er mögnuð en þrátt fyrir að enska liðið sé fullt af spennandi sóknarmönnum þá spilar liðið varnarsinnaðan fótbolta þar sem mörgum leikmönnum er greinilega bannað að fara úr stöðu.

Harry Kane skoraði langþráð mark í síðasta leik og hefur kannski grafið upp skotskóna sem gætu verið slæmar fréttir fyrir mótherja enska liðsins. Raheem Syerling var sá eini sem skoraði á fyrstu 355 mínútum Englendinga í keppninni.

Úkraínumenn spiluðu seinna um daginn og lengra leik en Englendingar í sextán liða úrslitunum. Hvort þreyttir fætur hafi áhrif eða hvort liðið sé búið að vinna sinn sigur með því að komast svona langt, á eftir að koma í ljós.

Pressan verður alltaf á enska liðinu í kvöld. Þeir eru eitt sigurstranglegasta liðið sem er eftir í keppninni og það yrðu mikil vonbrigði að detta út í þessum leik nú þegar vegurinn sýnist greiður alla leið í úrslitaleikinn.

Leikur Englendinga og Úkraínumanna hefst klukkan 19.00 í kvöld og verður sýndur beint á EM-stöðinni.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×