Hollendingar öruggir í 16-liða úrslit eftir sterkan sigur gegn Austurríki

Donyell Malen og Denzel Dumfries fagna öðru marki Hollendinga í kvöld.
Donyell Malen og Denzel Dumfries fagna öðru marki Hollendinga í kvöld. ANP Sport via Getty Images

Hollendingar tóku á móti Austurríkismönnum í Amsterdam í seinasta leik dagsins á Evrópumótinu í knattspyrnu. Bæði lið komu inn í leikinn með þrjú stig, og 2-0 sigur Hollendinga þýðir það að þeir eru komnir langleiðina með að vinna C-riðilinn.

Þó að leikurinn hafi ekki boðið upp á mörg opin marktækifæri í kvöld þá voru það Hollendingar sem voru heilt yfir sterkari aðilinn. Til að mynda áttu Austurríkismenn ekki marktilraun fyrr en að rétt um tíu mínútur voru til leiksloka.

Það tók Hollendinga ekki nema rétt rúmar tíu mínútur að brjóta ísinn. David Alaba fékk þá boltann inn í eigin vítateig, en fyrsta snerting hans var allt of þung og Denzel Dumfries náði honum á vítateigshorninu. Alaba virtist brjóta á Dumfries en dómari leiksins ver ekki sammála því. Eftir myndbandsskoðum var þó ákveðið að dæma vítaspyrnu.

Memphis Depay fór á punktinn fyrir Hollendinga og hann skoraði af miklu öryggi og kom sínum mönnum í 1-0.

Hollendingar héldu áfram að stjórna leiknum fram að hálfleik, en náðu ekki að finna netmöskvana áður en flautað var til leikhlés.

Á 67.mínútu tvöfölduðu Hollendingar forystu sína. Donyell Malen fékk þá boltann í góðri skyndisókn og var sloppinn í gegn. Í stað þess að skjóta sjálfur sýndi hann mikla óeigingirni og fann Denzel Dumfries sem var einn fyrir opnu marki.

Það voru því Hollendingar sem kláruðu sterkan 2-0 sigur og er því á toppi C-riðils með sex stig. Austurríkismenn mæta Úkraínu í seinasta leik riðilsins, og það lið sem vinnur þann leik tryggir farseðilinn upp úr riðlinum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira