Fótbolti

Ís­lendinga­lið Venezia skrefi nær ítölsku úr­vals­deildinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bjarki Steinn Bjarkason er einn tveggja Íslendinga í herbúðum Venezia.
Bjarki Steinn Bjarkason er einn tveggja Íslendinga í herbúðum Venezia. Venezia

Venezia er komið í úrslit umspils ítölsku B-deildarinnar í knattspyrnu um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Venezia sló Lecce út í kvöld eftir 1-1 jafntefli. Liðið vann fyrri leik liðanna 1-0 og er því komið í úrslitaleik umspilsins þar sem það mætir Cittadella eða Monza en þau leika síðari leik sinn í kvöld.

Cittadella er í mjög góðum málum eftir 3-0 sigur í fyrri leik liðanna.

Bjarki Steinn Bjarkason sat á varamannabekknum frá upphafi til enda í kvöld en Óttar Magnús Karlsson er enn frá vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×