Tíska og hönnun

Uppskeruhátíð ríflega sjötíu nemenda

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hluti af lokaverkefni eftir Brák Jónsdóttur sem útskrifast af myndlistardeild. Um sjötíu nemendur LHÍ sýna útskriftarverkefni sín á HönnunarMars í ár.
Hluti af lokaverkefni eftir Brák Jónsdóttur sem útskrifast af myndlistardeild. Um sjötíu nemendur LHÍ sýna útskriftarverkefni sín á HönnunarMars í ár. Vísir/Vilhelm

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2021, Af ásettu ráði, fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á HönnunarMars. Sýningin opnaði um helgina og til 24. maí er hægt að koma og skoða útskriftarverkefni nemenda í BA myndlist, fatahönnun, grafískri hönnun, vöruhönnun, arkitektúr og MA nema í hönnun.

Frá útskriftarsýningu Listaháskólans.Vísir/Vilhelm

Á sýningunni verða útskriftarlínur fatahönnunarnemanna til sýnis, fatnaður og aukahlutir, ásamt því að útskriftarmyndband fatahönnunarnema frá LHÍ verður í sýningu. Myndbandið INNÁVIÐ var frumsýnt hér á Vísi í síðustu viku og má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

Myndin verður sýnt með hljóði í Hafnarhúsi klukkan 16:30 alla daga á stórum skjá, fimmtudaga einnig klukkan 20:30 og laugardaga 12:30.

Á sýningunni má finna útskriftarverkefni nemenda í BA námi í myndlist, fatahönnun, grafískri hönnun, vöruhönnun, arkitektúr og MA-nema í hönnun.Foto: Vilhelm Gunnarsson

Útskriftarsýningin Af ásettu ráði, sem er hluti af Útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands, er með stærri listviðburðum ársins hjá Listasafni Reykjavíkur og hana sækja ótal gestir, jafnt fagfólk sem áhugasamir. Þar er hægt að skoða verk tilvonandi hönnuða og listamanna framtíðarinnar og gefur sýningin góða mynd af því sem koma skal. Í ár eru nemendurnir sem sýna á sýningunni um 70 talsins og verk þeirra fjölbreytt eftir því.

Útskriftarsýning Listaháskólans fer fram í Listasafni Reykjavíkur á HönnunarMars.Vísir/Vilhelm

Fersk sýn og nýjar víddir 

Sýningarstjórar sýningarinnar eru Birgir Örn Jónsson, Signý Þórhallsdóttir og Una Björg Magnúsdóttir. Sýningin er hluti af HönnunarMars í ár, en hátíðin verður sett formlega á morgun. 

„Það að finna hugmyndum sínum farveg er óvissuferðalag sem krefst hugrekkis og áræðni. Leiðin er sjaldnast vel stikuð og áfangastaðurinn er á sífelldri hreyfingu, ef hann er yfirhöfuð fyrir hendi. Þetta gerir ferðina þó þeim mun æsilegri. Mörk eru þanin og nýjar slóðir kannaðar. Forvitni, útsjónarsemi og einskær ásetningur nemenda hafa nú leitt þá að þessum mikilvægu tímamótum, eftir nám sem hefur veitt þeim fjölbreytt tækifæri til að kanna hugmyndir og þróa færni,“ segir í tilkynningu frá sýningarstjórnum Af ásettu ráði.

Útskriftarsýning ListaháskólansFoto: Vilhelm Gunnarsson

Útskriftarsýning Listaháskólans 2021 er uppskeruhátíð ríflega sjötíu nemenda úr myndlistar-, arkitektúr- og hönnunardeildum á BA stigi og úr MA námi í hönnun. 

„Efnistök nemenda eru margvísleg og nálgun hvers og eins einstök. Hér má finna ilmandi bókverk, landsliðsbúninga fyrir nýjar íþróttir, rottu í leit að osti lífsins, hljóðspegil og fullkomið augnablik. Eins er fjallað um skynjun í geimnum, leitina að ástinni, myndbirtingu ofhugsunar og leiðir til að endurnýta gerviefni. Önnur verk leita að nýjum litheimum, gefa okkur innsýn inn í sögur sjómanna og velta upp hugmyndum um nýja byggð í Viðey. Hér eru hvorki einfaldar lausnir né órekjanleg sannindi borin á borð. Verkin birta okkur aftur á móti ferska sýn á það sem við töldum okkur þekkja – eða opna okkur nýjar víddir. Af ásettu ráði hvetjum við gesti til að draga inn andann, opna hugann og njóta uppskerunnar.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×