Uppskeruhátíð ríflega sjötíu nemenda Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. maí 2021 12:01 Hluti af lokaverkefni eftir Brák Jónsdóttur sem útskrifast af myndlistardeild. Um sjötíu nemendur LHÍ sýna útskriftarverkefni sín á HönnunarMars í ár. Vísir/Vilhelm
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2021, Af ásettu ráði, fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á HönnunarMars. Sýningin opnaði um helgina og til 24. maí er hægt að koma og skoða útskriftarverkefni nemenda í BA myndlist, fatahönnun, grafískri hönnun, vöruhönnun, arkitektúr og MA nema í hönnun. Frá útskriftarsýningu Listaháskólans.Vísir/Vilhelm Á sýningunni verða útskriftarlínur fatahönnunarnemanna til sýnis, fatnaður og aukahlutir, ásamt því að útskriftarmyndband fatahönnunarnema frá LHÍ verður í sýningu. Myndbandið INNÁVIÐ var frumsýnt hér á Vísi í síðustu viku og má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Myndin verður sýnt með hljóði í Hafnarhúsi klukkan 16:30 alla daga á stórum skjá, fimmtudaga einnig klukkan 20:30 og laugardaga 12:30. Á sýningunni má finna útskriftarverkefni nemenda í BA námi í myndlist, fatahönnun, grafískri hönnun, vöruhönnun, arkitektúr og MA-nema í hönnun.Foto: Vilhelm Gunnarsson Útskriftarsýningin Af ásettu ráði, sem er hluti af Útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands, er með stærri listviðburðum ársins hjá Listasafni Reykjavíkur og hana sækja ótal gestir, jafnt fagfólk sem áhugasamir. Þar er hægt að skoða verk tilvonandi hönnuða og listamanna framtíðarinnar og gefur sýningin góða mynd af því sem koma skal. Í ár eru nemendurnir sem sýna á sýningunni um 70 talsins og verk þeirra fjölbreytt eftir því. Útskriftarsýning Listaháskólans fer fram í Listasafni Reykjavíkur á HönnunarMars.Vísir/Vilhelm Fersk sýn og nýjar víddir Sýningarstjórar sýningarinnar eru Birgir Örn Jónsson, Signý Þórhallsdóttir og Una Björg Magnúsdóttir. Sýningin er hluti af HönnunarMars í ár, en hátíðin verður sett formlega á morgun. „Það að finna hugmyndum sínum farveg er óvissuferðalag sem krefst hugrekkis og áræðni. Leiðin er sjaldnast vel stikuð og áfangastaðurinn er á sífelldri hreyfingu, ef hann er yfirhöfuð fyrir hendi. Þetta gerir ferðina þó þeim mun æsilegri. Mörk eru þanin og nýjar slóðir kannaðar. Forvitni, útsjónarsemi og einskær ásetningur nemenda hafa nú leitt þá að þessum mikilvægu tímamótum, eftir nám sem hefur veitt þeim fjölbreytt tækifæri til að kanna hugmyndir og þróa færni,“ segir í tilkynningu frá sýningarstjórnum Af ásettu ráði. Útskriftarsýning ListaháskólansFoto: Vilhelm Gunnarsson Útskriftarsýning Listaháskólans 2021 er uppskeruhátíð ríflega sjötíu nemenda úr myndlistar-, arkitektúr- og hönnunardeildum á BA stigi og úr MA námi í hönnun. „Efnistök nemenda eru margvísleg og nálgun hvers og eins einstök. Hér má finna ilmandi bókverk, landsliðsbúninga fyrir nýjar íþróttir, rottu í leit að osti lífsins, hljóðspegil og fullkomið augnablik. Eins er fjallað um skynjun í geimnum, leitina að ástinni, myndbirtingu ofhugsunar og leiðir til að endurnýta gerviefni. Önnur verk leita að nýjum litheimum, gefa okkur innsýn inn í sögur sjómanna og velta upp hugmyndum um nýja byggð í Viðey. Hér eru hvorki einfaldar lausnir né órekjanleg sannindi borin á borð. Verkin birta okkur aftur á móti ferska sýn á það sem við töldum okkur þekkja – eða opna okkur nýjar víddir. Af ásettu ráði hvetjum við gesti til að draga inn andann, opna hugann og njóta uppskerunnar.“
Tíska og hönnun HönnunarMars Tengdar fréttir Fjölskylduvænir viðburðir á HönnunarMars í ár Nú er HönnunarMars að fara að breiða úr sér um allan bæ með fjölda viðburða af öllu tagi. Yfir 80 viðburði má finna á dagskránni í ár. 17. maí 2021 18:01 HönnunarMars breiðir úr sér um alla borg HönnunarMars fer fram í þessari viku og má búast við því að íslensk hönnun taki yfir stórhöfuðborgarsvæðið næstu daga. 17. maí 2021 11:01 Innávið - Útskriftarverkefni fatahönnunarnema LHÍ frumsýnt Í kvöld frumsýnum við hér á Vísi útskriftarmyndband fatahönnunarnema frá Listaháskóla Íslands. Myndin verður einnig til sýningar á útskriftarsýningu nemenda. 14. maí 2021 20:00 Mest lesið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Sonurinn skírður Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Bítið í beinni Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Bernard Hill er látinn Lífið Fleiri fréttir Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira
Fjölskylduvænir viðburðir á HönnunarMars í ár Nú er HönnunarMars að fara að breiða úr sér um allan bæ með fjölda viðburða af öllu tagi. Yfir 80 viðburði má finna á dagskránni í ár. 17. maí 2021 18:01
HönnunarMars breiðir úr sér um alla borg HönnunarMars fer fram í þessari viku og má búast við því að íslensk hönnun taki yfir stórhöfuðborgarsvæðið næstu daga. 17. maí 2021 11:01
Innávið - Útskriftarverkefni fatahönnunarnema LHÍ frumsýnt Í kvöld frumsýnum við hér á Vísi útskriftarmyndband fatahönnunarnema frá Listaháskóla Íslands. Myndin verður einnig til sýningar á útskriftarsýningu nemenda. 14. maí 2021 20:00