Tíska og hönnun

Fjölskylduvænir viðburðir á HönnunarMars í ár

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þykjó er með barnvænar sýningar á HönnunarMars í Menningarhúsum Kópavogs.
Þykjó er með barnvænar sýningar á HönnunarMars í Menningarhúsum Kópavogs. Þykjó

Nú er HönnunarMars að fara að breiða úr sér um allan bæ með fjölda viðburða af öllu tagi. Yfir 80 viðburði má finna á dagskránni í ár. 

HönnunarMars hátíðin fer fram dagana 19. til 23. maí. Hér fyrir neðan má finna þá viðburði sem gætu verið sérstaklega áhugaverðir fyrir yngri kynslóðina. Teymið sem stendur að baki HönnunarMars í ár tók saman þennan lista.  Alla dagskrá hátíðarinnar má finna á vef HönnunarMars.

Athugið að sllar sýningar og sýningarstaðir HönnunarMars fylgja gildandi sóttvarnarreglum er varða samkomutakmarkanir og grímuskyldu.

Peysa með öllu fyrir alla, uppskeruhátíð 

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður og listakona sem starfar undir nafninu Ýrúrarí. Verk hennar eru að mestu unnin í prjóni og í þeim mætast húmor, handverk og hreyfing. Ýr hefur miðlað aðferðarfræði sinni í smiðjum þar sem unnið er með ósöluhæfar peysur úr fatasöfnun Rauðakrossins og þær fá nýtt líf.

Peysa með öllu fyrir alla, uppskeruhátíð

Ofurhetjur jarðar

Sýningarsal á fyrstu hæð Bókasafnsins og Náttúrfræðistofu Kópavogs er umbreytt í töfraveröld þar sem börn geta komið og brugðið sér í gervi fjölskrúðugra dýra. Dýrin eru ævintýraverur, innblásnar af mögnuðum eiginleikum dýra úr ýmsum vistkerfum jarðar. Búningarnir eru hannaðir með það í huga að þeir passi börnum á ólíkum aldursskeiðum.

Ofurhetjur jarðar

Krakkaklúbburinn Krummi í Listasafni Íslands

Í tilefni Hönnunarmars býður Krakkaklúbburinn krummi börnum og fjölskyldum þeirra í skemmtilega bókasmiðju þann 22.maí 2021 kl. 14 í Listasafni Íslands. Listaverkin á sýningum safnsins veita innblástur að gerð svokallaðra sprettimyndabóka.

Sprettimyndabók er þrívíð bók eða sviðsmynd sem hægt er að draga út og saman líkt og harmónikku en í miðjunni birtist sviðsmynd þar sem þú hannar þitt eigið bókverk.

Krakkaklúbburinn krummi

Allir út að læra

Námsgögnin Allir út að læra! byggja á því að nýta þann efnivið sem náttúran býður upp á og ýmis konar tækifæri til rannsókna og uppgötvana sem fólgin eru í útikennslu. Nemendur fá að kynnast ýmsum viðfangsefnum með því að rannsaka, skapa og finna sínar eigin lausnir. Námsgögnunum er ætlað að ýta undir að nemendur öðlist þekkingu með því að snerta, hreyfa og upplifa með öllum líkamanum.

Allir út að læra

Fylgið okkur

Sýningin Fylgið okkur teflir fram völdum verkum frá íslenskum hönnuðum sem eru nýsprottnir fram á sjónarsviðið. Hönnuðirnir eiga það sammerkt að hafa með sínum fyrstu verkum vakið athygli og eftirvæntingu, hver á sínu sviði

Fylgið okkur

Jarðsetning

Í innsetningunni JARÐSETNING er stigið inn í byggingu Iðnaðarbankans og fylgst er með niðurrifi hennar innanfrá.

Jarðsetning

Af ásettu ráði

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2021, „Af ásettu ráði“ fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu dagana 15. -24. maí. Þar sýna útskriftarnemendur á BA stigi í arkitektúr, fatahönnun, grafískri hönnun, vöruhönnun og myndlist ásamt útskriftarnemendum í MA hönnun.

Af ásettu ráði

Samhæfður dans í Vesturbæjarlauginni

BAHNS kynnir þriðju sundfatalínuna sína með einstakri sundupplifun í Vesturbæjarlauginni. Dansarar sýna móderniseraðan samhæfðan dans í nýjustu sundfötum merkisins. Sýningarnar verða tvær, klukkan 16.30 og 17.30 en ókeypis verður í laugina milli 16 og 18 föstudaginn 19. maí.

Samhæfður dans í Vesturbæjarlauginni

Maðurinn í skóginum

Með varanlegum innsetningum í nokkrum skógarrjóðrum hafa tvö hönnunarteymi skapað áfangastaði í hólmanum, sem minna á sögu skógarins og þá miklu gleði og góða anda sem fylgdi skógræktinni. Fólki gefst þar kostur á að eiga samveru í skjóli, fræðast, njóta náttúrunnar og fallegrar hönnunar.

Maðurinn í skóginum

Dagskrá HönnunarMars 2021 má finna HÉR.


Tengdar fréttir

Plokkuðu 750 kíló af rusli í Elliðaárdalnum

Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur plokkuðu 750 kíló af rusli úr Elliðaárdalnum í vikunni, þegar vorhreinsun Orkuveitunnar fór fram. Alls tóku 132 starfsmenn OR þátt í átakinu yfir þrjá daga.

FÍT verðlaunin 2021 afhent í streymi

Í dag verður tilkynnt hverjir hljóta verðlaun í FÍT Keppninni 2021. Félag íslenskra teiknara stendur fyrir FÍT keppninni ár hvert þar sem bestu verk grafískrar hönnunar eru verðlaunuð.

Þessi hlutu viðurkenningar á FÍT-verðlaununum í ár

FÍT verðlaunin 2021 voru afhent rétt í þessu í rafrænu streymi og var sýnt frá viðburðinum í beinni útsendingu hér á Vísi. Verðlaunin eru á vegum Félags Íslenskra teiknara og eru afhent í tuttugasta skipti í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×