Tíska og hönnun

HönnunarMars breiðir úr sér um alla borg

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá setningu HönnunarMars á síðasta ári.
Frá setningu HönnunarMars á síðasta ári. HönnunarMars

HönnunarMars fer fram í þessari viku og má búast við því að íslensk hönnun taki yfir stórhöfuðborgarsvæðið næstu daga.

Opinberar dagsetningar hátíðarinnar HönnunarMars eru 19. til 23. maí en margir viðburðir opna fyrr eða eru opnir lengur. Engir stórir og mannmargir viðburðir eru á hátíðinni í ár vegna Covid og öll áhersla á sýningar hönnuða og arkitekta sem eru um allt höfuðborgarsvæðið og nágrenni.

Allar sýningar og sýningarstaðir HönnunarMars fylgja gildandi sóttvarnarreglum er varða samkomutakmarkanir og grímuskyldu.

Nú birtir til

HönnunarMars er stærsta hönnunarhátíð landsins og er dagskráin komin í loftið með um 80 sýningum sem endurspegla einstaka grósku íslensks hönnunarsamfélags á þessum umbrotatímum í öflugu samstarfi við nýsköpunargeirann, atvinnulífið, sendiráð Íslands út í heimi svo fátt eitt sé nefnt.

Framtíðin, tækni, sjálfbærni, náttúra, arfleifð og nýsköpun er þátttakendum hugleikin viðfangsefni á hátíðinni í ár sem veitir innblástur inn í nýja tíma.

Rafræn málþing og hlaðvörp tengd hönnun og arkitektúr eru meðal nýjunga í dagskrá hátíðarinnar í ár. Fyrir helgi sýndum við hér á Vísi frá málþinginu Híbýlaauður, afhendingu FÍT verðlaunanna og frumsýndum útskriftarmynd fatahönnunarnemenda við Listaháskóla Íslands. Fleiri viðburðir verða sýndir hér á Vísi næstu daga.

„Nú birtir til. HönnunarMars maí er að raungerast. Fram undan er fimm daga hönnunarhátíð með fjölbreyttri og spennandi dagskrá þar sem gestum og gangandi gefst tækifæri fá innsýn inn í einstaklega áhugaverðan heim hönnuða og arkitekta og fyllast innblæstri,“

segir Þórey Einarsdóttir, stjórnandi HönnunarMars

Helstu sýningarsvæði hátíðarinnar í ár eru Gróska, Hafnartorg, Ásmundarsalur, Harpa, Elliðaárdalurinn, Norræna húsið, Grandi, Hönnunarsafn Íslands, Epal, Ásmundarsafn, Ráðhús Reykjavíkur, Kópavogur, Miðbær, Listasafn Einars Jónssonar, Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, Hannesarholt, Þjóðminjasafn Íslands og svo breiða sýningar sér yfir allt stór- Reykjavíkursvæðið.

Dagskrá HönnunarMars má nálgast á vef hátíðarinnar en þar er einnig hægt að skoða kort og finna þannig viðburði út frá staðsetningu. Fyrir þá sem vanta hugmyndir hafa margir einstaklingar deilt sinni eigin dagskrá fyrir HönnunarMars á síðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs


Tengdar fréttir

Plokkuðu 750 kíló af rusli í Elliðaárdalnum

Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur plokkuðu 750 kíló af rusli úr Elliðaárdalnum í vikunni, þegar vorhreinsun Orkuveitunnar fór fram. Alls tóku 132 starfsmenn OR þátt í átakinu yfir þrjá daga.

FÍT verðlaunin 2021 afhent í streymi

Í dag verður tilkynnt hverjir hljóta verðlaun í FÍT Keppninni 2021. Félag íslenskra teiknara stendur fyrir FÍT keppninni ár hvert þar sem bestu verk grafískrar hönnunar eru verðlaunuð.

Þessi hlutu viðurkenningar á FÍT-verðlaununum í ár

FÍT verðlaunin 2021 voru afhent rétt í þessu í rafrænu streymi og var sýnt frá viðburðinum í beinni útsendingu hér á Vísi. Verðlaunin eru á vegum Félags Íslenskra teiknara og eru afhent í tuttugasta skipti í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×