Juventus mistókst að vinna nýliðana

Brekkan er orðin ansi brött fyrir Ronaldo og félaga ætli þeir sér að vinna ítölsku deildina.
Brekkan er orðin ansi brött fyrir Ronaldo og félaga ætli þeir sér að vinna ítölsku deildina. Valerio Pennicino/Getty Images

Það voru ansi óvænt úrslit í ítalska boltanum í dag þegar Juventus tapaði 0-1 á heimavelli gegn Benevento. Tapið setur dæld í titilvonir Juventus, en mikilvæg þrjú stig fyrir Benevento sem koma sér sjö stigum frá fallsæti.

Juventus menn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og þeir naga sig líklega í handabökin eftir þetta tap. Gestirnir áttu aðeins eitt skot á markið og það endaði með því að Wojciech Szczesny, markvörður Juventus þurfti að sækja boltann í netið.

Eina mark leiksins skoraði Adolfo Gaich á 69. mínútu. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin, en allt kom fyrir ekki og niðurstaðan 0-1 sigur gestanna.

Benevento fer þá í 29 stig í sextánda sæti deildarinnar, en Juventus er enn í því þriðja með 55, tíu stigum á eftir toppliði Inter.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira