Lífið

Steingrímur J. kynntur sem Guðni Th.

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Þarna stendur vissulega Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, en ekki Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Þarna stendur vissulega Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, en ekki Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. skjáskot

Mistök voru gerð við útsendingu þingfundar í dag þar sem Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis var titlaður sem Guðni Th. Jóhannesson, framsögumaður Vinstri Grænna.

Steingrímur steig í pontu í dag og mælti fyrir breytingum á lögum um þingsköp Alþingis og lögum um réttindum og skyldum starfsmanna ríkisins. 

Þar var hann hins vegar nefndur Guðni Th. Jóhannesson. Ekki þó forseti Íslands, eins og við mætti búast, heldur framsögumaður Vinstri grænna.

Sara Elísa Þórðardóttir, vökull þingmaður Pírata, tók skjáskot af þessum skemmtilega misskilningi og deildi á Facebook þar sem málið hefur vakið mikla kátínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×