Sport

Síðasta uppgjör gömlu goðsagnanna Brady og Bress verður sögulegt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Drew Brees hefur fagnað sigri í leikjunum á móti Tom Brady í vetur.
Drew Brees hefur fagnað sigri í leikjunum á móti Tom Brady í vetur. Getty/Cliff Welch

Eftir daginn í dag verða aðeins fjögur lið á lífi í úrslitakeppni NFL-deildarinnar og seinni leikur kvöldsins er uppgjör milli tveggja af farsælustu leikstjórnendunum í sögu deildarinnar.

 Tom Brady og Drew Brees eru enn að spila þrátt fyrir að vera komnir vel inn á fimmtugsaldurinn en þeir mætast mögulega í síðasta sinn í kvöld.

Leikir kvöldsins eru annars vegar leikur á milli NFL-meistara Kansas City Chiefs og Cleveland Browns en hins vegar leikur á milli New Orleans Saints og Tampa Bay Buccaneers.

Kansas City Chiefs var með besta árangurinn í Ameríkudeildinni en hefur ekki fagnað sigri í þrjár vikur. Chiefs liðið tapaði síðasta deildarleiknum sínum, sem skipti liðið reyndar ekki máli, og sat svo sjá um síðustu helgi. Patrick Mahomes hvíldi í þeim leik en hann og félagar hans eru líklegir til að endurtaka leikinn frá því í fyrra enda með frábært lið.

Á sama tíma hefur öskubuskuævintýri fæðst hjá Cleveland Browns sem hefur unnið tvo stóra sigra liði Pittsburgh Steelers síðustu tvær helgar. Fyrri leikurinn skipti Pittsburgh Steelers engu máli en þar tryggði Cleveland sér sæti í úrslitakeppninni. Cleveland Browns fór síðan til Pittsburgh Steelers helgina og sló liðið út úr úrslitakeppninni.

Cleveland Browns var aðhlátursefni í deildinni í mörg ár eftir skelfilegt gengi en liðið komst nú í ár loksins í úrslitakeppnina eftir átján ára fjarveru. Liðið var án þjálfar síns og nokkurra leikmanna vegna kórónuveirusmits um síðustu helgi en unnu engu að síður magnaðan sigur.

Það bíða því margir eftir að sjá hvort ævintýrið geti haldið áfram á móti meisturunum.

Seinni leikur kvöldsins er söguleg viðureign ellismellanna Drew Brees og Tom Brady sem eru 42 ára og 43 ára gamlir. Aldrei áður hafa eldri eða reyndari leikstjórnendur mæst í úrslitakeppni NFL-deildarinnar.

Þetta verður líklega síðasta uppgjöri þeirra því Drew Brees mun væntanlega leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Tom Brady er kominn í nýtt félag og er strax búinn að koma Tampa Bay Buccaneers í úrslitakeppnina. Hann er á eftir sínum sjöunda meistaratitli eftir að hafa unnið sex með New England Patriots liðinu.

Það mun reyna á Tom Brady í kvöld enda mótherjarnir gríðarlega sterkir og virðast auk þess vera hreinlega með tak á Tampa Bay Buccaneers liðinu ef marka má úrslit tímabilsins til þessa.

New Orleans Saints hefur líka endurheimt lykilmenn úr meiðslum og eftir naum og svekkjandi töp í úrslitakeppnum síðustu ára þá er kannski komið að því að hlutirnir gangi upp á þessu kveðjutímabili Brees. Hann hefur minnsta kosti hæfileikaríka menn með sér í liði.

New Orleans Saints hefur þegar unnið Tampa Bay Buccaneers tvisvar sinnum í vetur þar á meðal 38-3 í síðasta leik liðanna. Tampa Bay vann hins vegar fjóra síðustu deildarleiki sína auk þess að slá Washington Football Team út úr úrslitakeppninni um síðustu helgi.

Það hefur verið mjög gaman að fylgjast með Tom Brady síðustu vikur en þar hefur hann sýnt af hverju hann er í flestra augum besti NFL-leikmaður allra tíma. Hann er með nóg af vopnum til að gefa á og kann það betur en allir að leiða lið til sigurs í úrslitakeppni NFL-deildarinnar.

Útsending frá leik Kansas City Chiefs og Cleveland Browns hefst klukkan 20.00 á Stöð 2 Sport 2 en klukkan 23.30 hefst síðan útsending frá leik New Orleans Saints og Tampa Bay Buccaneers á sömu stöð.


NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×