Skalli Daw­­son af­­greiddi utan­­­deildar­liðið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Craig Dawson stangar boltann í netið.
Craig Dawson stangar boltann í netið. Martin Rickett/Getty

West Ham er komið í 32 liða úrslitin eftir 1-0 sigur á utandeildarliðinu Stockport County. Sigurmarkið kom innan við tíu mínútum fyrir leikslok á Edgely Park í kvöld.

Það var eðlilega úrvalsdeildarliðið sem réði ferðinni í leik liðanna í kvöld en þrátt fyrir fjölmargar tilraunir vildi boltinn ekki inn í fyrri hálfleik.

Hamrarnir þurftu að bíða allt þangað til á 83. mínútu en þá skoraði varnarmaðurinn Craig Dawson laglegt skallamark eftir fyrirgjöf Jarrod Bowen. Lokatölur 1-0.

Dregið var í 32 liða úrslitin fyrr í kvöld og mætir West Ham Doncaster í fjórðu umferðinni.

Nái þeir alla leið í fimmtu umferðina, sextán liða úrslitin, er það annað hvort Man. United eða Liverpool sem bíða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira